
Þeir eru ekki bara Bakkabræður, heldur líka miklir grínistar.
Maður nokkur keypti hlutabréf í Exista í fyrra fyrir 236 þúsund krónur, honum bjóðast nú 230 krónur fyrir hlutina.
Bakkabræður ætla að fjármagna kaup í Exista með láni frá Lýsingu – sem er dótturfélag Exista. Þeir vilja eignast restina af Exista og hyggjast greiða fyrir 228 milljónir.
Þegar best lét var Exista metið á 447 milljarða. Samkvæmt verðtilboði Bakkabræðra er virði þess nú 1,3 milljarðar.
Meðal eigna Exista eru Síminn og VÍS, auk Lýsingar.
Það er talið að skuldir Exista nemi 255 milljörðum. Á móti gerir Exista kröfu á hendur Kaupþingi upp á 120-140 milljarða króna – vegna gjaldeyrisbrasks.