
Mér voru sendar nokkrar áleitnar spurningar vegna fyrirgreiðslu fjármálaráðherra við VBS.
— — —
Ég var að renna yfir ársreikning VBS og sá þá að þeir núvirða lánið frá Ríkinu (ríkisstuðninginn) og færa það til tekna í RR. Er þetta gert í samráði við FME ?
Er önnur fjármögnun VBS yfir 12% markaðsvöxtum einnig núvirt og færð til gjalda í RR?
Án þessara tekjufærslu væri eigið fé VBS neikvætt.
Er jafnræðis gætt þegar Ríkið veitir tveimur fjármálafyrirtækjum í einkaeigu ríkisstuðning ?
Ég get ekki lesið út úr reikningnum að VBS hafi tapið krónu á REPO lánunum við Seðlabankann þar sem skuldabréfin frá Kaupþing og LÍ (tryggingarbréf v/REPO) voru skuldajöfnuð.
Úr fréttatilkynningu frá VBS: “Með samkomulaginu er tryggt að Ríkissjóður og þar með skattgreiðendur fái að fullu greiddar skuldbindingar þær sem VBS fjárfestingarbanki tókst á hendur vegna viðskiptanna” Hvernig í ósköpunum er hægt að setja fram svona fullyrðingu ???
Er verið að verðlauna VBS fyrir áhættusækna útlánastefnu ? Í þenslunni á byggingamarkaðnum þá gekk sú saga að ef menn fengu ekki fjármögnun hjá stóru bönkunum þremur þá var leitað til VBS og Frjálsa.