
Þegar verður farið yfir sögu íslensku útrásarinnar verður nokkuð stór kafli helgaður Exista. Gengi þessa félags var um tíma 40 en síðustu viðskipti – þegar aðaleigendur fyrirtækisins, Bakkabræður – náðu leifunum af því undir sig var gengið 0,02.
Exista var stærsti eigandi Kaupþings, Bakkabræður áttu bankanum sem á móti fjármagnaði útrásarævintýri þeirra. Aðförinni gegn íslensku krónunni var stjórnað af Kaupþingi, Exista og Kjalari – öðrum stóreigenda í bankanum.
Þetta þótti svo frábært að margir sparisjóðir fjárfestu í stórum stíl í Exista. Þegar félagið hrundi fór grundvöllurinn undan sparisjóðunum líka. Eftir stendur stórkostleg skuldasúpa.
En það er svo merkilegt að á viðskiptaþingi sem haldinn verður á vegum Viðskiptaráðs í næsta mánuði er einn af aðalræðumönnunum forstjóri Exista.
Fundurinn á að fjalla um endurreisn íslenska hagkerfisins.
Á sama tíma hefur viðskiptaráðherra talað um að nauðsynlegt sé að leysa upp stóru eignarhaldsfélögin, enda hafi þau verið „meinsemd“ í íslensku viðskiptalífi.
Og reyndar er líklegt að eitthvað af fyrirtækjum sem heyra undir Exista verði komin í hendurnar á eignaumsýslufélagi ríkisins – eða hvað verður til dæmis með Símann?