fbpx
Þriðjudagur 10.mars 2026
433Sport

Kaupverð Arsenal á Gyokeres hækkar og hækkar

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 27. febrúar 2026 10:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arsenal festi kaup á sænska framherjanum Viktor Gyökeres frá Sporting Lissabon síðasta sumar fyrir 54,8 milljónir punda, en heildarupphæð samningsins getur hækkað upp í 63,5 milljónir með árangurstengdum greiðslum.

Nú þegar líður á tímabilið er ljóst að Lundúnaliðið er þegar farið að greiða hluta af þessum viðbótum. Talið er að Arsenal gæti þegar hafa borgað um 58,3 milljónir punda fyrir framherjann, þar sem ákveðnir skilmálar hafa þegar verið uppfylltir.

Meðal annars fær Sporting 500 þúsund evrur í hvert sinn sem Gyökeres nær 20 mörkum og stoðsendingum samanlagt. Framherjinn er nú kominn með 15 mörk og tvær stoðsendingar og því styttist í næstu greiðslu. Hámarkið fyrir þennan lið samningsins er ein milljón evra.

Þá hefur Arsenal þegar greitt 1,25 milljónir evra eftir að Gyökeres náði 20 leikjum þar sem hann spilaði að minnsta kosti 45 mínútur. Sá bónus getur farið upp í fimm milljónir evra ef hann nær 80 slíkum leikjum, en hann er nú kominn í 30.

Að lokum tengjast greiðslur einnig árangri Arsenal í deildinni. Sporting fær eina milljón evra í hvert skipti sem Arsenal tryggir sér sæti í Meistaradeildinni, með hámark upp á fjórar milljónir.

Ef Gyökeres heldur áfram á sömu braut er ljóst að Arsenal mun glaðlega greiða þessar viðbætur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Hræðileg paneka spyrna kostaði Brentford – West Ham í átta liða úrslit

Hræðileg paneka spyrna kostaði Brentford – West Ham í átta liða úrslit
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Vill taka við Manchester United frekar en Tottenham í sumar

Vill taka við Manchester United frekar en Tottenham í sumar
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Icelandair flaug stjörnum Liverpool til Tyrklands í dag

Icelandair flaug stjörnum Liverpool til Tyrklands í dag
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Drátturinn í enska bikarnum: Chelsea og Arsenal fengu létta drætti – Stórleikur City og Liverpool

Drátturinn í enska bikarnum: Chelsea og Arsenal fengu létta drætti – Stórleikur City og Liverpool
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Meira en helmingur liða hófu leik með mínusstig

Meira en helmingur liða hófu leik með mínusstig
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Rodri sektaður um meira en 13 milljónir

Rodri sektaður um meira en 13 milljónir