ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.9° 2m/s E

Stórfyrirtæki í öndunarvél

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
07:29 › 27. febrúar 2009

Brátt skýrist hvaða fyrirtæki stjórnvöld og ríkisbankarnir setja undir sérstakt eignasýslufélag. Þar gætu verið bágstödd flugfélög, skipafélög, síma- og fjarskiptafélög og önnur fyrirtæki sem tilheyra grunngerð samfélagsins. Fjármálaráðherra vill ekki tilgreina hvaða félög um sé að ræða en hann ræddi málið við bankastjóra ríkisbankanna nýverið.

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra vill ekki tilgreina hvaða fyrirtæki átt er við sem þjóðhagslega mikilvæg og fara muni í sérstakt eignasýslufélag á vegum ríkisins.

Nefnd um endurreisn fjármálakerfisins undir stjórn Mats Josefsson, sænsks bankasérfræðings, kynnti tillögur 11. febrúar sem meðal annars gerðu ráð fyrir stofnun slíks félags. Félaginu (Asset Management Company) er ætlað að styðja endurreisn stærri fyrirtækja sem talin eru gegna mikilvægu hlutverki í íslensku efnahagslífi, en einnig að endurskipuleggja félög og bjarga verðmætum sem glatast ef þau fara í þrot.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.