fbpx
Mánudagur 11.ágúst 2025
Eyjan

Alan Sillitoe: Napurt verkamannaraunsæi

Egill Helgason
Sunnudaginn 25. apríl 2010 20:44

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Saturday_Night_and_Sunday_Morning

Rithöfundurinn Alan Sillitoe, sem er látinn á níræðisaldri, varð frægur fyrir harðsoðnar bækur sem fjölluðu um líf ungs fólks í breskri verkalýðsstétt eftirstríðsáranna. Sjálfur var hann af verkamannafjölskyldu frá Nottingham, datt út úr skóla á unglingsaldri. Söguhetjur hans eru ungir karlmenn, sem spretta upp úr svipuðu umhverfi og til dæmis fjórmenningarnir í Bítlunum – það er tími þrenginga eftir stríðið, skömmtunar og nokkurs tepruskapar í siðferðisefnum sem Stillitoe og fleiri gerðu  uppreisn gegn.

Hann var flokkaður með hópi rithöfunda sem voru kallaðir „reiðu ungu mennirnir“ og komu fram í lok sjötta áratugarins. Sá frægasti og dæmigerðasti var leikritaskáldið John Osborne sem eins og Sillitoe var úr lágstétt, hafði dottið út úr skóla, en náð að mennta sig af eigin rammleik.

Frægustu verkin skrifaði Sillitoe í kringum 1960. Hetja fyrstu skáldsögu hans, Saturday Night and Sunday Morning, fer út á næturlífið og á í tilvistarvanda – þessi persóna, Arthur Seaton, verður í ráðleysi sínu einhvers konar táknmynd ungs fólks á þessum tíma, ekki síst eftir að Karel Reisz gerði fræga kvikmynd eftir sögunni með Albert Finney í aðalhlutverki.

Myndin gerði Finney að stórstjörnu. Síðar kom bók með ógleymanlegan titil, The Loneliness of the Long Distance Runner. Hún fjallar um unglingspilt sem lendir á upptökuheimili. Pilturinn hefur mikla hæfileika til langhlaupa, en þegar hann getur unnið mikinn sigur á hlaupabrautinni kastar hann honum viljandi frá sér, af því hann vill ekki spila með kerfinu.

Eftir þessari sögu var líka gerð fræg kvikmynd í miklum raunsæisstíl, það var Tony Richardson sem leikstýrði, en ungur Tom Courtney lék aðahlutverkið og gat sér frægð fyrir.

[youtube=http://www.youtube.com/watch?v=OHsOSySZOyo]

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Hræðslan við breytingar er íhaldinu ofviða

Sigmundur Ernir skrifar: Hræðslan við breytingar er íhaldinu ofviða
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Stjörnustund ráðherrans

Óttar Guðmundsson skrifar: Stjörnustund ráðherrans
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Höfundur hrunsins toppar sjálfan sig – kallar Kristrúnu og Þorgerði Katrínu „fermingarstúlkur“

Orðið á götunni: Höfundur hrunsins toppar sjálfan sig – kallar Kristrúnu og Þorgerði Katrínu „fermingarstúlkur“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Össur segir Guðlaug Þór hafa farið viljandi með rangt mál – „Bókstaflega skrældur í tætlur eins og hýði af gamalli kartöflu“

Össur segir Guðlaug Þór hafa farið viljandi með rangt mál – „Bókstaflega skrældur í tætlur eins og hýði af gamalli kartöflu“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Og áfram heldur stjórnarandstaðan – pólitísku kapítali sólundað

Orðið á götunni: Og áfram heldur stjórnarandstaðan – pólitísku kapítali sólundað
Eyjan
Fyrir 1 viku

Tollasamningur ESB og Bandaríkjanna: Sterkur leikur hjá Ursulu von der Leyen að veita bandarískum vörum tollfrelsi í Evrópu

Tollasamningur ESB og Bandaríkjanna: Sterkur leikur hjá Ursulu von der Leyen að veita bandarískum vörum tollfrelsi í Evrópu
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Óttar Guðmundsson skrifar: Æskuást

Óttar Guðmundsson skrifar: Æskuást
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Greinir heimsókn Ursulu von der Leyen og spyr hvað stjórnarandstaðan óttist

Greinir heimsókn Ursulu von der Leyen og spyr hvað stjórnarandstaðan óttist