fbpx
Föstudagur 19.desember 2025
Eyjan

Aftur Icesave á jólum

Egill Helgason
Miðvikudaginn 14. desember 2011 10:37

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nú hefur verið ákveðið að Icesavemálið fari fyrir EFTA-dómstólinn. Icesave hefur einstakt lag á að skjóta upp kollinum um jólin.

Maður sér víða á netinu að hlakkar í mönnum yfir þessu – það er einhvers konar „sagði ég ekki“ viðhorf.

Efnahags- og viðskiptaráðherra var í viðtali í Silfri Egils fyrir viku og taldi að Íslendingar ættu ekkert að borga umfram það sem er að fara út úr þrotabúi Landsbankans.

Málaferli fyrir þessum dómstóli verða sjálfsagt forvitnileg  – en í ljósi þess hvernig ástandið er á bankakerfinu í Evrópu væri í meira lagi sérkennileg niðurstaða ef dómur félli á þann veg að af því hlytist tjón fyrir íslenska ríkið.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Karl Ágúst Úlfsson: Aldurinn farinn að segja til sín – eins gott að þú ert að hætta

Karl Ágúst Úlfsson: Aldurinn farinn að segja til sín – eins gott að þú ert að hætta
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Litli hluthafinn rýfur málhvíldina

Þorsteinn Pálsson skrifar: Litli hluthafinn rýfur málhvíldina