George Osborne, fjármálaráðherra Bretlands, fær heldur slæma útreið í fjölmiðlum vegna fjárlagafrumvarps síns.
Það sem menn einblína einkum á eru lækkaðir skattar á hina ofurríku – sem koma ekki síst til góða stuðningsmönnum Íhaldsflokksins í The City – en auknar álögur á lífeyrisþega.
Það er talað um „ömmuskatt“ í þessu sambandi.
Hér eru forsíður Daily Mail og Daily Telegraph – sem bæði eru hægra megin í pólitíska litrófinu.