Hér upp úr 1970 voru starfandi ýmis félög sem kenndu sig við marx-lenínisma í margvíslegum myndum.
EIK(ml), KSml, KSml(b), KFÍml og Fylkingin var líka ml að einhverju leyti. Ml stóð fyrir marx-lenínisma – hvað annað?
Nú ætla þau hjá VG að rifja upp þessi gömlu – en ekki endilega góðu – fræði, því á laugardaginn hófst leshringur um marx-lenínismann í húsakynnum VG við Suðurgötu.
Það er flokksfélagið í Reykjavík sem stendur fyrir þessu ásamt félagsskap sem nefnist Rauður vettvangur.