Í Fésbókargrúppunni sem kallar sig Betri valkost á Bessastaði er mikið talað um Þóru Arnórsdóttur og Stefán Jón Hafstein sem forsetaframbjóðendur.
En það er ljóst að þau höfða til nokkurn veginn sama mengis af kjósendum.
Þannig er eiginlega ekki pláss fyrir þau bæði í kosningunum – þau myndu bara taka fylgi hvort af öðru.
Ef þau ætla fram þá er eiginlega spurning um hvort verður fyrra til.
Hins vegar er spurning hvort þau gætu fellt Ólaf Ragnar – bæði myndu að miklu leyti sækja fylgi sitt til stuðningsmanna núverandi ríkisstjórnar.
Þriðji frambjóðandinn sem hefur verið nefndur er Elín Hirst. Hún kemur úr allt öðrum hópi.
Elín hefur ekki mikið tjáð sig um pólitík sjálf, en hún hefur verið tengd ýmsum ráðamönnum í Sjálfstæðisflokknum eins og til dæmis Kjartani Gunnarssyni.
Framboð hennar fengi sjálfsagt ágætan hjómgrunn á þeim bæ.
Í framhaldi af þessu má benda á þessa hárbeittu grein eftir Friðriku Benónýs sem birtist í Fréttablaðinu í morgun.