fbpx
Laugardagur 07.júní 2025
Eyjan

Olíulindir og stefna í loftslagsmálum

Egill Helgason
Laugardaginn 25. febrúar 2012 22:06

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðni Elísson bókmenntafræðingur birti í vetur grein um loftslagsmál í Tímariti Máls og menningar. Guðni hefur fjallað mikið um þessi mál í gegnum árin, en hér beinir hann sjónum sínum meðal annars að olíufundi á Drekasvæðinu og viðbrögðunum við því þegar Kolbrún Halldórsdóttir, þá umhverfisráðherra og þingmaður Vinstri grænna, sagði – „olíuvinnsla samrýmist hvorki stefnu um sjálfbæra nýtingu orkulinda né skuldbindingum Íslands á alþjóðavettvangi“.

Innan við klukkutíma síðar, það voru að koma kosningar, kom yfirlýsing frá þingflokki VG þar sem sagði að flokkurinn hefði ekki lagst gegn olíuleit á Drekasvæðinu.

Guðni segir að þessi afstaða Kolbrúnar hafi hugsanlega kostað hana þingsæti og heldur svo áfram:

„Sú staðreynd að kjósendur eindregnasta umhverfisverndarflokks Íslands skyldu refsa þingmanni sínum með svo afgerandi hætti sýnir glögglega hversu vonlaust það er fyrir stjórnmálamann að fylgja eftir ábyrgri stefnuskrá á sviði loftslagsmála. Þetta er öruggasta leiðin til þess að tapa kosningum eins og Steingrímur J. Sigfússon vissi fullvel þegar hann færðist fimm sinnum undan að svara því hvort flokkurinn styddi olíuvinnslu á Drekasvæðinu.

Viðbrögð íslenskra kjósenda sýna einnig hversu flóknir allir pólitískir samningar um losunarheimildir eiga eftir að reynast. Stjórnmálamenn sem ætla sér að bregðast við vandanum á ábyrgan hátt munu að öllum líkindum ekki hafa nauðsynlegt bakland til þess að hrinda slíkum ákvörðunum í framkvæmd. Ef vinstrisinnaðir kjósendur í velmegunarsamfélagi bregðast á ofangreindan hátt við yfirlýsingu um að þeir verði sviptir óvissum framtíðargróða ætti að vera ljóst að ekkert verður gert í samfélögum sem nú þegar eiga beinna hagsmuna að gæta í vinnslu jarðefnaeldsneytis og þar sem efnahagurinn reiðir sig beinlínis á slíkan iðnað. Íslenska dæmið sýnir að líklega er óvinnandi vegur að stemma stigu við losun gróðurhúsalofttegunda nógu fljótt til þess að forða jörðinni frá alvarlegum veðurfarsbreytingum.“

Grein Guðna má lesa í heild sinni hérna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Þröstur Ólafsson: Útgerðin felur gróðann með skúffufélögum í skattaskjólum – ósvífnar hótanir

Þröstur Ólafsson: Útgerðin felur gróðann með skúffufélögum í skattaskjólum – ósvífnar hótanir
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Musk hættur hjá Trump – Töluðu ekki saman undir lokin

Musk hættur hjá Trump – Töluðu ekki saman undir lokin
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Nýr formaður SA í vasa sægreifa – blekkingar Jens Garðars – Lilja Dögg veit ekki að hagvöxturinn í fyrra var í mínus

Orðið á götunni: Nýr formaður SA í vasa sægreifa – blekkingar Jens Garðars – Lilja Dögg veit ekki að hagvöxturinn í fyrra var í mínus
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkar sem eru á móti sjálfum sér

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkar sem eru á móti sjálfum sér
Eyjan
Fyrir 1 viku

Gunnar Smári um uppgjörið í Sósíalistaflokknum – „Ég var búinn með minn tíma“

Gunnar Smári um uppgjörið í Sósíalistaflokknum – „Ég var búinn með minn tíma“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Umræðu lyft á hærra plan

Þorsteinn Pálsson skrifar: Umræðu lyft á hærra plan