fbpx
Föstudagur 06.júní 2025
Eyjan

Ekki einsdæmi

Egill Helgason
Fimmtudaginn 16. febrúar 2012 22:54

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er eitthvað til í því hjá Styrmi Gunnarssyni að úrslitin í fyrri umferð frönsku kosninganna sýni útbreidda ónánægju með ráðandi stjórnmálaelítu.

Styrmir vísar þar í mikið fylgi Marine Le Pen, frambjóðanda Þjóðfylkingarinnar.

En þessi úrslit eru samt langt í frá að vera einstök. Í fyrri umferð franskra forsetakosninga er fjöldi frambjóðenda og atkvæðin dreifast jafnan mikið.

En  2002 varð mikill skellur þegar faðir Marine, Jean Marie Le Pen, vann mikinn sigur í fyrri umferð forsetakosninga.

Hann fékk 17 prósent – svipað fylgi og dóttir hans nú.

Þá fékk Lionel Jospin, fyrrverandi forsætisráðherra og frambjóðandi Sósíalista á baukinn, komst ekki í aðra umferðina. Hann fékk 16 prósent, en sjálfur forsetinn, Jacques Chirac, fékk ekki nema tæp 20 prósent.

Þetta var miklu verri skellur fyrir „stjórnmálaelítuna“ en nú.

Í annarri umferð var svo kosið á milli Chiracs forseta og Le Pen. Þá brugðust franskir kjósendur við með því að flykkja sér um Chirac – Le Pen bætti ekki við sig nema einu prósentustigi milli umferðanna, en Chirac fékk 82 prósent. Það var svar kjósenda við framsókn öfgaaflanna.

Í þetta sinn kemst Marina Le Pen ekki í aðra umferð. Sarkozy forseti mun hins vegar reyna að biðla til kjósenda hennar, en það er vandrötuð leið – með því gæti hann fælt frá fylgi á miðjunni.

En það er athyglisvert að fylgjast með kosningum í Evrópu eftir að efnahagskreppan hófst. Í Bretlandi komust íhaldsmenn aftur til valda – með skóladrengi úr úrvalsskólanum Eton í fararbroddi – á Spáni unnu hægrimenn yfirburðasigur um daginn. Á Írlandi var valdaflokknum Fiánna Fail sópað burt.

Í Grikklandi verður svo kosið 6. maí. Það gæti orðið áhugavert – því óvíða er jafn mikil andúð á stjórnmálaelítum og þar.

Marine Le Pen.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Er Trump búinn að tapa sér endanlega? – Stórfurðuleg færsla hans um aftöku Biden

Er Trump búinn að tapa sér endanlega? – Stórfurðuleg færsla hans um aftöku Biden
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Prússneskur agi

Björn Jón skrifar: Prússneskur agi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Össur leggur til nýtt formannsefni fyrir Sósíalistaflokkinn í öldurótinu

Össur leggur til nýtt formannsefni fyrir Sósíalistaflokkinn í öldurótinu
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Fyrrverandi þingmaður gengur af göflunum – nýr þingmaður gengur fram af fólki

Svarthöfði skrifar: Fyrrverandi þingmaður gengur af göflunum – nýr þingmaður gengur fram af fólki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ráðherra les móðgaðri stjórnarandstöðu pistilinn – „Ykkar eina erindi hér á þessu þingi er sérhagsmunagæsla“

Ráðherra les móðgaðri stjórnarandstöðu pistilinn – „Ykkar eina erindi hér á þessu þingi er sérhagsmunagæsla“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Geðstirður karl hættir í vinnunni

Geðstirður karl hættir í vinnunni