fbpx
Föstudagur 19.desember 2025
Eyjan

Sjálfstæðismenn og skuldavandinn

Egill Helgason
Mánudaginn 6. febrúar 2012 16:52

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tveir áhrifamenn í Sjálfstæðisflokknum hafa undanfarna daga hvatt til aðgerða vegna skuldavanda heimilanna.

Illugi Gunnarsson reið á vaðið fyrir helgi og sagði að þyrfti að meta greiðsluþol íslenskra heimila og laga skuldastöðuna að því. Það væri ekki til neins að halda fólki í heljargreipum. Illugi hvatti til þjóðarsáttar um þessi mál.

Í dag skrifar Kristján Þór Júlíusson grein þar sem segir meðal annars:

„Frá því í október 2008 hefur verðtryggingin fengið að herja óáreitt á skuldsett heimili landsins. Verðbólga frá ársbyrjun 2008 er nálega 40 prósent og lánþegar þessa lands hafa mátt horfa á lánin sín hækka um þá upphæð auk hárra vaxta….Þeir fjármunir hafa runnið í hirslur fjármálafyrirtækja og fjárfesta. Með nokkrum sanni má segja að þetta fyrirkomulag hafi hneppt stóran hluta þjóðarinnar á besta aldursskeiði, 25-40 ára, í skuldaþrælkun og stuðlað að stórfelldum flutningi á eignum frá einum þjóðfélagshópi til annars.“

Skyldi þarna vera grundvöllur að víðtækri sátt um þessi mál? Það virðist altént ljóst að Sjálfstæðisflokkurinn er bjóða upp á einhvers konar aðgerðir gegn þessum vanda – raunar er þetta í anda þess sem var samþykkt á landsfundi flokksins – og það hlýtur að valda núverandi stjórnarflokkum miklum heilabrotum. Þetta er líklega það einstaka mál sem mestu veldur um óvinsældir ríkisstjórnarinnar og það verður ekki þægilegt að fara með það óklárað í kosningar.

Kristján talar um gríðarlega tilfærslu á fjármagni síðustu árin. Í dag er viðkvæði stjórnenda lífeyrissjóða að þeir hafi ekki tapað svo miklu miðað við það sem gengur og gerist í Evrópu. En það skyldi þó ekki vera svo að hrun krónunnar, verðbólgan og verðtryggingin  hafi einmitt lagað stöðu sjóðanna þannig að tapið er síður sýnilegt?

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Séra Örn Bárður Jónsson: Vissi lítið um trú – fékk opinberun og venti kvæði sínu í kross

Séra Örn Bárður Jónsson: Vissi lítið um trú – fékk opinberun og venti kvæði sínu í kross
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Svandís hættir sem formaður VG

Svandís hættir sem formaður VG
Eyjan
Fyrir 1 viku

Karl Ágúst Úlfsson: 110 þýðingar komnar – best að komast afsíðis

Karl Ágúst Úlfsson: 110 þýðingar komnar – best að komast afsíðis
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Jólatréð í Kokkedal

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Jólatréð í Kokkedal
Eyjan
Fyrir 1 viku

Karl Ágúst Úlfsson: Stungum á kýlum samfélagsins meðan við fengum að vera hirðfíflið – svo vorum við stoppaðir

Karl Ágúst Úlfsson: Stungum á kýlum samfélagsins meðan við fengum að vera hirðfíflið – svo vorum við stoppaðir
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigvaldi Einarsson skrifar: Áliðnaður framtíðarinnar er mættur – ætlum við aftur að selja auðlindirnar fyrir slikk?

Sigvaldi Einarsson skrifar: Áliðnaður framtíðarinnar er mættur – ætlum við aftur að selja auðlindirnar fyrir slikk?