„Reiðhjólasalan er orðin aðalbúgreinin hérna, ég byrjaði að flytja inn reiðhjól fyrir þremur árum en er búinn að vera miklu lengur í viðgerðum,“ segir Eiríkur Ingi Kristinsson hjá Reiðhjóla- og sláttuvélaþjónustunni, Vagnhöfða 6 í Reykjavík, og segir jafnframt að reiðhjólasala og reiðhjólaviðgerðir fari prýðilega vel saman.
Eiríkur byrjaði að gera við reiðhjól árið 1986. Hann lagði þann starfa af mörgum árum síðar en í hruninu gerðist hvort tveggja að Eiríkur sjálfur þurfti að skipta um starfsvettvang og eftirspurn eftir viðgerðum stórjókst og hann stofnaði Reiðhjóla- og sláttuvélaþjónustuna.
„Þegar rignir þá er meira að gera í sláttuvélunum og þegar það er gott veður er meira að gera í reiðhjólunum,“ segir Eiríkur sem hefur reynt að gæta þess að reksturinn verði ekki of umfangsmikill því hann vill halda þessu sem fjölskyldufyrirtæki. Hann hefur lengst af starfað einn í fyrirtækinu en sonur hans, Eyþór Eiríksson, sem er mikið í hjólasporti, starfar þar nú með föður sínum.
„Sláttuvélaviðgerðirnar hafa heldur verið á undanhaldi og við höfum jafnvel verið að bræða með okkur að hætta með þær og einbeita okkur að reiðhjólasölu og reiðhjólaviðgerðum því það er svo mikill vöxtur í því. Ég gæti líklega selt miklu fleiri reiðhjól en ég geri en ég vil ekki að þetta vaxi mér yfir höfuð, ég vil halda þessu sem litlu fjölskyldufyrirtæki,“ segir Eiríkur en vöxtur hljóp í starfsemina vorið 2015 er hann hóf að flytja inn hollensku reiðhjólin Sensa. Hafa þessi reiðhjól notið mikilla vinsælda en alls konar gerðir af Sensa-hjólum eru í boði, fjallahjól, götuhjól, keppnishjól og margt fleira.
„Sensa á það sameiginlegt með okkur að vera líka fjölskyldufyrirtæki en fyrirtækið hefur vaxið mikið og þeir selja nú hátt í 30.000 hjól á ári,“ segir Eiríkur en alls konar aukahlutir og varahlutir í hjólin eru líka til sölu í versluninni.
Verkstæðið er vel tækjum búið enda liggur áratuga reynsla í viðgerðum að baki. „Við erum hér með öll helstu tól og tæki til viðgerða á reiðhjólum og sláttuvélum. Ekki þarf að panta tíma í viðgerðir heldur nægir að koma á staðinn með bilaða reiðhjólið eða sláttuvélina og viðgerð er oftast lokið samdægurs eða næsta dag,“ segir Eiríkur.