fbpx
Mánudagur 06.maí 2024
433Sport

Segir að Albert sé alltof góður fyrir varalið PSV

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 11. apríl 2018 10:17

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rik Elfrink blaðamaður ED í Hollandi segir að Albert Guðmundsson sé alltof góður til að spila fyrir varalið PSV.

Albert hefur að mestu spilað með varaliðinu í vetur í næst efstu deild Hollands. Þar hefur hann átt afar góðu gengi að fagna.

Albert skoraði tvö mörk í 6-0 sigri á Go Ahead Eagles í gær en leikurinn var flautaður af undir lokin vegna þess að þrumur og eldingar voru á vellinum.

,,Guðmundsson er klár fyrir næsta gæðaflokk, það er það eina sem er hægt að segja um þetta tímabil hans,“
skrifar Elfrink.

,,Það á líka við um nokkra aðra leikmenn liðsins, þeir sanna að þeir eru klárir í úrvalsdeildina,“ segir í umfjölluninni en Albert hefur fengið nokkur tækifæri með aðalliði PSV í vetur.

Albert mun eiga eitt ár eftir af samningi sínum við PSV í sumar en möguleiki er fyrir hendi að hann fari frá félaginu til að gerast fastamaður í aðalliði.

Albert er fæddur árið 1997 en hann á möguleika á að vera í HM hópi Íslands í Rússlandi í sumar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Kaupir ekki útskýringar um fjarveru Viðars – „Þetta er bara bullshit“

Kaupir ekki útskýringar um fjarveru Viðars – „Þetta er bara bullshit“
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Nokkrar staðreyndir fyrir stórleikinn í Kópavoginum – Valur í brekku en miðað við síðustu leiki verður þetta ekki niðurstaðan

Nokkrar staðreyndir fyrir stórleikinn í Kópavoginum – Valur í brekku en miðað við síðustu leiki verður þetta ekki niðurstaðan
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Stuðningsmönnum Liverpool brugðið – Eyðir öllu tengdu félaginu af samfélagsmiðlum

Stuðningsmönnum Liverpool brugðið – Eyðir öllu tengdu félaginu af samfélagsmiðlum
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Ætlar að ræða við forseta félagsins – Vill ekki senda Messinho til Englands

Ætlar að ræða við forseta félagsins – Vill ekki senda Messinho til Englands
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Ferð með Alberti og Gumma Ben seldist á meira en fimm milljónir

Ferð með Alberti og Gumma Ben seldist á meira en fimm milljónir
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Heimsfrægi hjartaknúsarinn hellti vel í sig um helgina – ,,Passaðu röddina!“

Heimsfrægi hjartaknúsarinn hellti vel í sig um helgina – ,,Passaðu röddina!“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Ten Hag orðaður við óvænt starf í sumar

Ten Hag orðaður við óvænt starf í sumar