Undirmönnun á sjúkrahúsinu í Holbæk í Danmörku hefur haft mikil áhrif á sjúklingana sem hafa mátt þola mikla skerðingu á þjónustu og umönnun. Nýlega uppgötvuðu hjúkrunarfræðingar á sjúkrahúsinu að einn sjúklingur hafði ekki fengið neitt að borða í fimm daga.
Danska ríkisútvarpið segir að í framhaldi af þessu hafi Vinnueftirlitið gripið inn í. Það hefur nú lagt fyrir stjórnendur sjúkrahússins að grípa tafarlaust til viðbragða og ráða bót á þessu. Í skýrslu Vinnueftirlitsins kemur fram að sjúklingar liggi að staðaldri á göngum þess, reglulega séu gerð mistök við lyfjagjöf og að hjúkrunarfræðingar hafi engan tíma til að sinna tann- og munnhirðu sjúklinga sem hafi í för með sér að eldri sjúklingar fái oft sár í munn.
Í skýrslunni er haft eftir einum hjúkrunarfræðingi að það geti gert alla brjálaða að heyra í sífellu í sjúklingum sem kalla á aðstoð. Það nísti í hjartastað að geta ekki gefið sér bara fimm mínútur til að halda í hönd sjúklings.
Eins og á mörgum öðrum dönskum sjúkrahúsum eru of fáir hjúkrunarfræðingar við störf. Nú vofa verkföll og verkbönn yfir í Danmörku og hefjast í næstu viku að öllu óbreyttu. Stjórnendur sjúkrahússins í Holbæk hafa beðið um undanþágu frá verkföllum og verkbönnum þar sem sjúkrahúsið geti ekki tryggt neyðarþjónustu ef til aðgerða kemur. Ef til verkfalls og verkbanns kemur þá má ekki fá afleysingafólk til starfa og eingöngu verður hægt að treysta á fastráðið starfsfólk.