fbpx
Föstudagur 15.maí 2026
Fréttir

Ingibjörg Eva ákærð fyrir tilraun til manndráps í Norðurmýrinni: Stakk fyrrverandi kærasta

Hjálmar Friðriksson
Fimmtudaginn 5. október 2017 10:50

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ingibjörg Eva Löve hefur verið ákærð fyrir tilraun til manndráps en hún er sökuð um að hafa stungið fyrrverandi kærasta sinn í brjóstkassa. Hún er sögð hafa ruðst inn á heimili hans í Norðurmýrinni grímuklædd ásamt öðrum manni þann 5. júní samkvæmt ákæru. Ingibjörg Eva hefur verið í gæsluvarðhaldi síðan þá.

DV hefur rætt við manninn sem varð fyrir árásinni. Hann segist enn vera að jafna sig eftir atvikið og vildi því ekki að svo stöddu tjá sig um það.

Samkvæmt ákæru réðst Ingibjörg á sinn fyrrverandi kærasta fyrst með hafnaboltakylfu, en hún ku hafa skipst á því að beita henni ásamt manninum sem er ákærður með henni. Hún er sögð hafa stungið sinn fyrrverandi svo með þeim afleiðingum að hann hlaut djúpan skurð yfir rifbili hægra megin á brjóstkassa en litlu mátti muna að hnífurinn snerti innri líffæri. Stungan lá nálægt slagæð aftan við rifbein og hefði getað valdið alvarlegri blæðingu, segir í ákæru.

Málsatvik koma skýrar fram í gæsluvarðhaldsúrskurði sem Hæstiréttur staðfesti í upphafi mánaðar. Þar kemur fram að fyrrverandi kærastinn hafi verið heima hjá sér ásamt þremur vinum sínum. Ingibjörg Eva er sögð hafa hringt í hann ítrekað og var hann orðinn þreyttur á því áreit. Hann mun því hafa látið stúlku sem var á heimili hans svara í símann.

Ingibjörg Eva er sögð hafa brugðist illa við þessu og fékk maðurinn stutt síðar SMS þar sem Ingibjörg Eva sagðist hlakka til að hitta þau. Samkvæmti dómi þá var Ingibjörg Eva stuttu síðar mætt á heimili hans ásamt öðrum manni en þau voru bæði vopnuð og með klúta fyrir andlitum sínum.

Fyrrverandi kærastinn segist fullviss um að hún hafi ætlað að myrða sig, samkvæmt dómi Hæstaréttar. Vitni að árásinni sem var að ganga í Norðurmýrinni umrædda nótt lýsti því í skýrslu hjá lögreglu að hún hafi heyrt einhvern segja „hún stakk hann, hún stakk hann“. Þá hafi hún heyrt konuna segja við manninn sem fylgdi henni „hvar er hnífurinn minn, hvar er kylfan mín“ en hann hafi svarað „ég faldi dótið“.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Beta gefst upp á að innheimta tjón á íbúð sem skemmdist í útleigu borgarinnar – „Ég er ekki að sakast við fólkið“

Beta gefst upp á að innheimta tjón á íbúð sem skemmdist í útleigu borgarinnar – „Ég er ekki að sakast við fólkið“
Fréttir
Í gær

Skemmdarverk unnin á kosningaskrifstofu Miðflokksins í Vestmannaeyjum í nafni Sjálfstæðisflokksins

Skemmdarverk unnin á kosningaskrifstofu Miðflokksins í Vestmannaeyjum í nafni Sjálfstæðisflokksins
Fréttir
Í gær

Lék í leyfisleysi lausum hala um viðskiptareikning bróður síns – Sveik út vörur 300 sinnum á fimm árum

Lék í leyfisleysi lausum hala um viðskiptareikning bróður síns – Sveik út vörur 300 sinnum á fimm árum
Fréttir
Í gær

Lyklavöld að nýju bókasafni Hafnarfjarðar sem enn er bókalaust afhent með viðhöfn rétt fyrir kosningar – „Sérstakt og tímasetningin mjög sérstök“ – „Þetta var ekki sett svona upp“

Lyklavöld að nýju bókasafni Hafnarfjarðar sem enn er bókalaust afhent með viðhöfn rétt fyrir kosningar – „Sérstakt og tímasetningin mjög sérstök“ – „Þetta var ekki sett svona upp“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Njáll vill leyfa mótorhjólum að aka á milli bíla – „Öllum til góða“

Njáll vill leyfa mótorhjólum að aka á milli bíla – „Öllum til góða“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fær ekki dýra og bráðnauðsynlega augnaðgerð endurgreidda – Aðeins einn læknir á landinu gat framkvæmt hana

Fær ekki dýra og bráðnauðsynlega augnaðgerð endurgreidda – Aðeins einn læknir á landinu gat framkvæmt hana