fbpx
Sunnudagur 22.júní 2025
Fréttir

Hjörvar og Héðinn í hár saman: „Ég ber mikla virðingu fyrir þér sem skákmanni en enga sem manneskju“

Hjörvar valinn í landsliðið en Héðinn ekki – Vanda hvor öðrum ekki kveðjurnar

Einar Þór Sigurðsson
Mánudaginn 27. júní 2016 10:32

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég gæti skrifað fleiri þúsund orð um framkomu þína á hinum ýmsu mótum en ég hreinlega nenni því ekki því þú ert ekki þess virði,“ segir Hjörvar Steinn Grétarsson, stórmeistari og landsliðsmaður Íslands í skák. Ásakanir hafa gengið manna á milli í Facebook-hópnum Íslenskir skákmenn þar sem Hjörvar Steinn og annar þekktur stórmeistari, Héðinn Steingrímsson, vanda hvor öðrum ekki kveðjurnar.

Hjörvar valinn í landsliðið

Svo virðist vera sem grunnt sé á því góða á milli þessara tveggja öflugu stórmeistara í skák, en á dögunum var Hjörvar Steinn, einn besti skákmaður landsins, valinn í íslenska landsliðið sem teflir á Ólympíuskákmótinu í Aserbaídsjan í september næstkomandi. Héðinn, sem er hokinn af reynslu í skákheiminum, var ekki valinn í liðið og sitt sýnist hverjum um það. Meðal þeirra sem blanda sér í umræðuna um valið er Helgi Árnason, formaður skákdeildar Fjölnis og skólastjóri Rimaskóla, sem kallar eftir því að forseti Skáksambands Íslands grípi inn í og breyti ákvörðun landsliðsþjálfara Íslands, Ingvars Þórs Jóhannessonar.

„Ef að menn ákveða að hætta í móti, þá er eðlileg framkoma að tilkynna það.“

Kannast ekki við annað en íþróttamannslega framkomu

Fleiri blanda sér í umræðuna um hið umdeilda val. Einn þeirra er Guðmundur Kjartansson, alþjóðlegur skákmeistari, sem einnig var valinn í landslið Íslands. Guðmundur segir:

„Héðinn býr yfir mörgum góðum kostum sem skákmaður, mætir vel undirbúinn til leiks, er mjög einbeittur og með mikinn metnað, eitthvað sem aðrir íslenskir skákmenn ættu að að tileinka sér. Hins vegar verð ég að vera hreinskilinn og segja að mér finnst hann geta bætt sig að öðru leyti, sem liðsfélagi og hvað varðar virðingu og íþróttamannlegri framkomu gagnvart andstæðingum sínum, öðrum keppendum og skákstjórum.“

Héðinn komst í fréttirnar fyrir skemmstu, en DV greindi frá því í mars að tíu sentímetrar hafðu gert það að verkum að Héðinn ákvað að mæta ekki til leiks á Alþjóðlega Reykjavíkurskákmótið. Í fréttinni kom fram að deilur hefðu staðið yfir í nokkurn tíma milli hans og Skáksambands Íslands vegna stærðar þeirra borða sem notuð eru í mótinu. Að mati Héðins var ekki farið eftir reglum Alþjóða skáksambandsins um aðbúnað og munar þar 10 sentimetrum. „Öll þessi ár hefur engin kvartað yfir stærð borðanna nema Héðinn Steingrímsson,“ segir Gunnar Björnsson, forseti Skáksambands Íslands í samtali við DV í mars.

Héðinn blandar sér í umræðuna á Facebook og segist ekki kannast við annað en að sýna íþróttamannslega framkomu. „Ég tel mig vera fyrirmyndar liðsfélaga. Ber hag liðsins fyrir brjósti og er prófessional í mínum vinnubrögðum,“ segir Héðinn sem vindur sér því næst að Hjörvari og gagnrýnir hann fyrir ýmislegt. Þannig hafi Hjörvar Steinn ekki mætt í skák gegn Héðni á Skákþinginu fyrr í þessum mánuði og ekki haft fyrir að tilkynna forföll. „Ef að menn ákveða að hætta í móti, þá er eðlileg framkoma að tilkynna það. Það er skrýtið að mæta bara ekki,“ segir Héðinn í færslu sem hann birti þann 16. júní síðastliðinn.

„Kominn með nóg af Héðni og hans framkomu“

Hjörvar skrifar langa og ítarlega færslu sem birtist í Facebook-hópnum í gærkvöldi. Þar hjólar Hjörvar hressilega í Héðin: „Í ljósi þess að Héðinn ásakaði mig um hitt og þetta í kommenti hér að neðan og þess að liðsfélagi minn, Guðmundur Kjartansson, er búinn að lýsa yfir skoðun sinni á valinu þá ætla ég að gera slíkt hið sama. Ég mun hins vegar ekki fara jafn fínt í hlutina því ég er kominn með algjörlega nóg af Héðni og hansi framkomu. Þessu er beint til hans,“ segir Hjörvar Steinn í byrjun færslunnar. Hann segir að Héðinn hafi séð sér leik á borði til að gagnrýna sig í ljósi þess að Héðinn var sniðgenginn í vali á landsliðinu.

„Ég sá ekki um það val og kom ekki nálægt því enda hef ég um margt annað að hugsa um í augnablikinu. Einu samskipti á milli mín og Ingvars voru þau að ég gaf kost á mér.
Þú ásakaðir mig fyrst um að hafa ekki tilkynnt þér það persónulega að ég myndi ekki tefla. Ég tilkynnti skákstjórum fjarveru mína, hvað gerist eftir það er engan veginn í mínum höndum. Þér er velkomið að beina reiði þinni annað,“ segir Hjörvar sem bætir svo við, neðar í færslunni:

„Ef þú heldur að þú getur ásakað mig um hitt og þetta án þess að ég svari fyrir mig, think again.“

„Ég ber mikla virðingu fyrir þér sem skákmanni en enga sem manneskju. Ég hef verið sakaður um svindl af þér sjálfum og móður þinni. Þú hefur sýnt það margoft að þú ert ekki hæfur í lið. Þú talar ávallt um það hvað þér kemur vel við alla í liðinu þó að það sé aðeins í hausnum á þér.“

Stór orð, segir Héðinn

Hjörvar bætir svo við að ef valið yrði í landslið einungis út frá skákstyrkleika yrði Héðinn eflaust valinn í landsliðið, enda góður skákmaður. „…en ef þú heldur að ég muni einhvern tímann fórna mér sjálfum fyrir þig, eins og ég myndi gera fyrir alla þá sem eru í landsliðinu sem fer út, þá skjátlast þér all svakalega. Það mun aldrei gerast. Ég gæti skrifað fleiri þúsund orð um framkomu þína á hinum ýmsu mótum en ég hreinlega nenni því ekki því þú ert ekki þess virði. Ef þú heldur að þú getur ásakað mig um hitt og þetta án þess að ég svari fyrir mig, think again.“

Þessi harðorða færsla Hjörvars hefur vakið nokkra athygli og eru skiptar skoðanir um hana. Héðinn blandar sér í umræðuna og segir Hjörvar vaða á súðum og nota helst til stór orð.

„Það er erfitt að svara gagnrýni þinni á mig, því það er vaðið á súðum, stór orð notuð, móðir mín dregin inní þetta og fyrst og fremst ýmislegt gefið í skyn. Þú skrifar að þú gætir lýst alls konar hlutum, en í raun lýsir þú ekki neinu. Almennt veit ég ekki hvað þú átt við,“ segir hann og bætir við að hann hafi takmarkaðan áhuga á að standa í stappi sem þessu. „Finnst þessi skrif ekki á sérlega háu plani. Finnst skrýtið að menn reyni að hagræða staðreyndum, sem liggja fyrir. Tek í raun undir með hinni ágætu Hamlette Hok. Ef ég sé ekki ástæðu til að svara einhverjum skrifum hér, þá vitið þið hvers vegna.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nágrannaerjur í Vesturbænum – Borgin setur fram kröfur í málinu en ætlar ekki að fylgja þeim eftir

Nágrannaerjur í Vesturbænum – Borgin setur fram kröfur í málinu en ætlar ekki að fylgja þeim eftir
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nicolas ætlar áfram að taka myndir af holum og birta á samfélagsmiðlum – Holukort sýnir allar tilkynntar holur

Nicolas ætlar áfram að taka myndir af holum og birta á samfélagsmiðlum – Holukort sýnir allar tilkynntar holur
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íslendingur verulega ósáttur við ferðamenn – „Ég er búinn að fá upp í kok“

Íslendingur verulega ósáttur við ferðamenn – „Ég er búinn að fá upp í kok“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Húsleitir víða í gær og farið fram á gæsluvarðhald í dag

Húsleitir víða í gær og farið fram á gæsluvarðhald í dag