fbpx
Föstudagur 20.júní 2025
Fréttir

Vantar þig hjól? Lögreglan býður upp 209 reiðhjól

Árlegt uppboð lögreglunnar á óskilahjólum

Ritstjórn DV
Laugardaginn 7. maí 2016 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í dag, laugardag, mun lögreglan í Reykjavík bjóða upp 209 óskilareiðhjól sem eru í hennar vörslu. Margir hugsa sér eflaust gott til glóðarinnar, enda oft hægt að gera verulega góð kaup og næla sér í hjól á góðu verði.

Þórir Ingvarsson lögregluþjónn varð fyrir svörum þegar blaðakona sló á þráðinn til að forvitnast um stemninguna í aðdraganda uppboðsins. „Hún er frábær eins og vanalega. Við erum með óvenjumörg hjól þar sem verkfall hjá sýslumanni í fyrra kom í veg fyrir uppboð að vori. Þegar við héldum uppboðið í fyrrahaust var því ekki eins mikill áhugi og vant er og fáir mættu.“

Eign tryggingafélaganna

En hvað gerist ef einhver mætir og sér stolna hjólið sitt á meðal uppboðshjóla? „Það hefur reyndar aldrei gerst, en að sjálfsögðu mundum við skoða það mál og greiða úr því. Reyndar hafa öll hjólin sem við bjóðum upp verið í vörslu okkar í ár eða meira, svo að í flestum tilfellum hugsa ég að tryggingar hafi greitt þau stolnu út til eigenda. Þau hjól væru þá í raun eign tryggingafélaganna.“

Þegar vorar velja æ fleiri að koma sér á milli staða á reiðhjóli, enda er það hollt fyrir líkama og sál.
Vorboði Þegar vorar velja æ fleiri að koma sér á milli staða á reiðhjóli, enda er það hollt fyrir líkama og sál.

Mynd: www.123rf.com

Þórir vill líka benda á að þeir sem sakna hjóla geta skoðað Pinterest-síðu lögreglunnar, en þar eru birtar myndir af reiðhjólum, og reyndar öllum óskilamunum sem koma til lögreglunnar. „Það er um að gera að kíkja á síðuna. Þar eru öll hjólin sem verða boðin upp og líka þau sem hafa verið hjá okkur í styttri tíma en ár. Við viljum endilega koma óskilamunum til eigenda.“

Peningar eða debet

Uppboð lögreglunnar á reiðhjólum hefst á morgun, laugardag 7. maí, kl. 11, í Skútuvogi 8. Greiða þarf reiðhjólin við hamarshögg og tekið er við greiðslu í beinhörðum peningum eða með debetkorti.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Spæjarastofan PPP stal líka gögnum frá stórum þrotabúum – „Merkilegir póstar ekki tengdir málum“

Spæjarastofan PPP stal líka gögnum frá stórum þrotabúum – „Merkilegir póstar ekki tengdir málum“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Leigjandi beið ósigur í harðvítugri deilu við leigusala – Ásakanir um hlutdrægni höfðu ekkert að segja

Leigjandi beið ósigur í harðvítugri deilu við leigusala – Ásakanir um hlutdrægni höfðu ekkert að segja
Fréttir
Í gær

Arnar ómyrkur í máli: „Þetta fyrirkomulag er gargandi tímaskekkja“

Arnar ómyrkur í máli: „Þetta fyrirkomulag er gargandi tímaskekkja“
Fréttir
Í gær

Viðvörunarbjöllurnar hringja varðandi Rússland – „Þetta er óþægileg lesning“

Viðvörunarbjöllurnar hringja varðandi Rússland – „Þetta er óþægileg lesning“