Sigurður Ingi Jóhannsson vildi ekki ljóstra upp um þann sem vildi ekki kjósa með tillögu Sigmundar Davíðs


Allir nema einn samþykktu tillögu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, fráfarandi forsætisráðherra, þar sem hann sagði af sér og eftirlét embættinu varaformanni flokksins, Sigurði Inga Jóhannssyni.
Þetta kom fram í viðtali Kastljóss við Sigurð Inga nú fyrir stundu.
Sigurður Ingi vildi ekki gefa upp hver það var sem studdi ekki tillöguna.
Sigurður Ingi á nú í viðræðum við Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins, um endurnýjun á samstarfinu eftir vendingar dagsins þar sem Sigmundur Davíð sagði af sér.
Hann sagði ennfremur að hann bæri fullt traust til Sigmundar Davíðs sem formanni flokksins.
Þá sagði hann einnig að hann bæri fullt traust til Bjarna þó hann væri flæktur í Panamaskjölin svokölluðu.
Bjarni sat einnig fyrir svörum í Kastljósi í kvöld, og fór hann þar yfir aðkomu sína að aflandsfélagi sínu á Seychelles-eyjum.
Bjarni sagði þar að málið snérist einfaldlega um fasteignaviðskipti sem gengu svo til baka. Hann sagði að félagið hafi hætt að vera virkt áður en hann varð formaður og ráðherra auk þess sem hann sagði að hann hefði fært allt sitt fé til landsins eftir hrun, og ekki nýtt sér afsláttarleið Seðlabanka Íslands til þess.
Hér er tillagan sem var samþykkt og lögð fram af Sigmundi Davíð:
Forsætisráðherra leggur til að varaformaður flokksins taki við embætti forsætisráðherra svo það megi verða til að ríkisstjórnin geti lokið þeim mikilvægum verkum sem hún hefur unnið að og varða mikilvæga þjóðarhagsmuni.
Þingflokkurinn lýsir ánægju með þá virðingarverðu afstöðu formannsins sem felst í því að hann skuli vera reiðubúinn að stíga þetta skref til að gera ríkisstjórninni kleift að vinna áfram að þeim mikilvægu verkefnum sem nú liggja fyrir.
Þingflokkurinn styður eftir sem áður formann flokksins og þykir mikilvægt að halda áfram þeirri vinnu sem
sem formaðurinn hefur átt svo stóran þátt í að leggja grunn að.
Formaður, varaformaður og aðrir þingmenn flokksins eru sammála um að mikilvægt sé að halda áfram að upplýsa um þann fjölda fyrirtækja í eigu Íslendinga sem skráð eru erlendis til að tryggja að allir standi skil á sínu til samfélagsins eins og formaður flokksins og kona hans hafa gert.