fbpx
Þriðjudagur 30.apríl 2024
Fréttir

Ríkisskattstjóri lét loka Fasteignasölu Reykjavíkur

Fasteignasalan innsigluð af lögreglu í tæpar tvær vikur – Eigendurnir íhuga skaðabótamál

Ritstjórn DV
Föstudaginn 29. apríl 2016 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lokaði Fasteignasölu Reykjavíkur í Skeifunni í síðasta mánuði að beiðni Ríkisskattstjóra. Þetta staðfestir lögmaður fyrirtækisins en það var innsiglað í tæpar tvær vikur. Ekki fæst uppgefið hjá Ríkisskattstjóra af hverju því var lokað en lögmaður fasteignasölunnar segir aðgerðirnar hafa beinst gegn röngu fyrirtæki. Eigandi þess íhugi skaðabótamál gegn Ríkisskattstjóra.

„Það var engin ástæða til að loka Fasteignasölu Reykjavíkur og engar skattaskuldir eða aðrar skuldir sem réttlættu lokun hjá því fyrirtæki. Þetta beindist gegn öðru félagi, rekstraraðila RE/MAX Alpha, sem var áður með rekstur í sama húsnæði,“ segir Orri Sigurðsson, lögmaður Fasteignasölu Reykjavíkur.

Fasteignasala Reykjavíkur er því fórnarlambið í þessum aðgerðum enda félagið ekki með forræði á greiðslu skulda annars skattaaðila.

Var opnuð í fyrra

Fasteignasalan RE/MAX Alpha var til húsa í Skeifunni 17 þangað til Fasteignasala Reykjavíkur var opnuð þar í maí í fyrra. Fyrrnefnda fyrirtækið er samkvæmt upplýsingum DV ekki lengur í rekstri en Brynjólfur Smári Þorkelsson, framkvæmdastjóri Fasteignasölu Reykjavíkur, var um tíma stjórnarmaður og prókúruhafi einkahlutafélagsins Þín eign, áður Fasteignin þín ehf., sem hélt utan um rekstur RE/MAX Alpha.

Fasteignasala Reykjavíkur ehf. er að sögn Orra Sigurðssonar í eigu Davíðs Ólafssonar, löggilds fasteignasala og starfsmanns fyrirtækisins. Þín eign er samkvæmt Fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra í eigu Sylvíu Guðrúnar Walthersdóttur, starfsmanns Fasteignasölu Reykjavíkur og eiginkonu Brynjólfs. Í umfjöllun um opnun fyrirtækisins, sem birtist í fasteignablaði Fréttablaðsins 18. maí 2015 undir fyrirsögninni „Nýir tímar – gömul gildi“, sagði að Brynjólfur og Sylvía væru eigendur Fasteignasölu Reykjavíkur.

„Ég hef ítrekað óskað eftir rökstuddri ákvörðun frá Ríkisskattstjóra um af hverju þessi aðgerð var framkvæmd, en ég geri ráð fyrir að tengingin sé að þarna var RE/MAX Alpha skráð til húsa. Fasteignasala Reykjavíkur er því fórnarlambið í þessum aðgerðum enda félagið ekki með forræði á greiðslu skulda annars skattaaðila,“ svarar Orri, aðspurður hvernig hann rökstyðji ályktun sína um að Ríkisskattstjóri hafi lokað röngu fyrirtæki.

Lokað rétt fyrir páska

Að sögn Orra lokaði lögreglan Fasteignasölu Reykjavíkur þann 23. mars síðastliðinn eða rétt fyrir páska. Fyrirtækið hafi verið opnað aftur tæpum tveimur vikum síðar eða 9. apríl. Sigurður Jensson, sviðsstjóri eftirlitssviðs Ríkisskattstjóra, segist ekki geta svarað því hvort embættið hafi farið fram á tímabundna lokun fyrirtækisins og þá ekki hvers vegna ráðist hefði verið í slíka aðgerð.

„Við getum ekki tjáð okkur um einstök mál. Almennt séð er lögreglan kölluð til þegar ekki er orðið við ítrekuðum leiðbeinandi tilmælum og þá leitum við eftir atbeina lögreglunnar til þess að stöðva reksturinn,“ segir Sigurður.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Að öllu óbreyttu verður þetta endanlegur fjöldi forsetaframbjóðenda

Að öllu óbreyttu verður þetta endanlegur fjöldi forsetaframbjóðenda
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Kveiks-fíaskóið vandræðalegt fyrir RÚV í ljósi tengsla útvarpsstjóra

Kveiks-fíaskóið vandræðalegt fyrir RÚV í ljósi tengsla útvarpsstjóra
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Snorri og Patrik vekja hneykslun: Konan hugsi um börnin og karlinn um peningana – „Gömlukallaraus í ungum mönnum“

Snorri og Patrik vekja hneykslun: Konan hugsi um börnin og karlinn um peningana – „Gömlukallaraus í ungum mönnum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þetta er umfjöllunin sem María Sigrún fékk ekki birta í Kveik

Þetta er umfjöllunin sem María Sigrún fékk ekki birta í Kveik