fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
Fréttir

Einstaklingar sem fá þunga dóma fái ekki að skipta um nafn

Ritstjórn DV
Mánudaginn 8. júní 2026 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Við erum ekki að tala um alla sem hafa brotið af sér. Þetta er mjög afmarkað,“ segir Sigurður Helgi Pálmason, þingmaður Flokks fólksins, í viðtali í Morgunblaðinu í dag.

Þar er greint frá því að Sigurður Helgi hafi lagt fram frumvarp til laga um breytingu á lögum um mannanöfn. Frumvarpið myndi heimila stjórnvöldum að synja einstaklingum um nafnbreytingu hafi þeir hlotið óskilorðsbundinn fangelsisdóm upp á þrjú ár eða meira fyrir alvarleg brot gegn almennum hegningarlögum.

Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að markmiðið sé að stuðla að auknu öryggi almennings og koma í veg fyrir að þeir sem gerast sekir um alvarleg brot geti með nafnbreytingu rofið tengsl við fyrra auðkenni sitt og þannig dregið úr samfélagslegum afleiðingum brota sinna.

Sigurður er flutningsmaður frumvarpsins ásamt fjölmörgum þingmönnum úr ýmsum flokkum, til dæmis Sjálfstæðisflokki, Framsóknarflokki, Viðreisn og Miðflokki.

Sigurður segir við Morgunblaðið að þetta komi til með að verja fólk fyrir einstaklingum sem nýta sér þann möguleika að geta breytt nafni sínu í kjölfar afbrota.

„Þarna eru þetta bara alvarlegir dómar þar sem þú hefur fengið þriggja ára dóm eða meira, þetta á alls ekki við þegar einstaklingar fá á sig minniháttar dóm og þetta eru alvarlegustu brotin,“ segir Sigurður við Morgunblaðið þar sem nánar er fjallað um málið.

Hægt er að kynna sér frumvarpið nánar hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Málverkum stolið af sýningu í Bolholti um hábjartan dag

Málverkum stolið af sýningu í Bolholti um hábjartan dag
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Davíð segir aðeins tímaspursmál þangað til annað ungmenni láti lífið: „Við þurfum að vakna og það núna“

Davíð segir aðeins tímaspursmál þangað til annað ungmenni láti lífið: „Við þurfum að vakna og það núna“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vendingar í deilu Bríetar og Pálma – Frávísun vegna verulegra ágalla

Vendingar í deilu Bríetar og Pálma – Frávísun vegna verulegra ágalla
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Áslaug Arna fær stuðning og gagnrýni eftir umfjöllun um laun hennar – „Hjóla af hörku og hatri gegn konum“ – „Sjúga spena ríkisins“

Áslaug Arna fær stuðning og gagnrýni eftir umfjöllun um laun hennar – „Hjóla af hörku og hatri gegn konum“ – „Sjúga spena ríkisins“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kvartaði vegna trúnaðarbrests í sveitarstjórn

Kvartaði vegna trúnaðarbrests í sveitarstjórn