fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fréttir

Opnar sig um vinslitin við Þorstein Má: „Peningar eru ekki allt í lífinu“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 4. júní 2026 18:00

Kristján Vilhelmsson, Þorsteinn Már Baldvinsson og Þorsteinn Vilhelmsson. Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Skipstjórinn fyrrverandi Þorsteinn Vilhelmsson segist ekki dvelja við það liðna og saknar ekki peninganna sem hann tapaði á sínum tíma. Þorsteinn opnar sig í viðtali við tímaritið Sjóarann þar sem hann ræðir um vinslitin við Þorstein Má Baldvinsson þegar sá fyrrnefndi seldi sig út úr Samherja um aldamótin.

Þorsteinn, bróðir hans Kristján Vilhelmsson og Þorsteinn Már gerðu stóra hluti með Samherja en árið 2000 kom babb í bátinn þegar Þorsteinn Vilhelmsson og fjölskylda hans seldi 21,6 prósenta hlut sinn í Samherja hf. til Kaupþings á rúma þrjá milljarða króna. Þetta var stórfrétt á sínum tíma og fullyrt að engin hlutabréfaviðskipt hefðu valdið eins miklum titringi í þjóðfélaginu og þingheimi. Árið áður hafði Þorsteinn óvænt sagt sig úr stjórn félagsins og var sáttur við að klippa alveg á strenginn.

„Ég get ekki sagt að mér sé eftirsjá að því að yfirgefa Samherja,“ sagði Þorsteinn í viðtölum á sínum tíma. „Þessi ákvörðun er tekin án eftirsjár, að öðru leyti en því, að þarna er mikið af góðum starfsmönnum, sem eru vinir mínir og ég átti dagleg samskipti við.“

Var því velt upp á sínum tíma að ástæðan fyrir þessu hafi verið ósætti milli þeirra tveggja. Í viðtalinu við Sjóarann segir Þorsteinn að hann eigi ekkert óuppgert við Þorstein Má. „Árið 2000 seldi ég hlutinn minn og það urðu vinslit. Mér fannst í fyrstu sem sökin væri ekki mín á því hvernig fór en þegar grannt er skoðað er það aldrei eins sök þegar tveir eða þrír deila. Auðvitað átti ég einhvern þátt í þessu líka. Þarna mættust stór egó. Það var ekkert létt að vera ekki lengur skipstjóri eftir 17 ár í brúnni,“ segir hann.

Þorsteinn fór út í eigin fjárfestingar en tapaði mestu í bankahruninu. „Ég tók þetta ákaflega nærri mér vegna annarra hluthafa. Ég hafði minni áhyggjur af eigin fjárfestingum.“ Í dag er hann sáttur við lífið. „Peningar eru ekki allt í lífinu. Á mínum aldri er manni orðið ljóst að það eru önnur atriði sem skipta miklu meira máli.“

Þá segir Þorsteinn í viðtalinu að hann vorkenni Þorsteini Má vegna Samherjamálsins en beðið er eftir ákvörðun héraðssaksóknara um næstu skref í því máli: „Mér þykir það hryggilegt og ég finn til með þeim að vera í þessum slag. Ég finn virkilega til með þeim.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kári heggur á hnútinn: Einstaklega ljótt að segja upp Ragnari Frey – Kemur með lausn til framtíðar

Kári heggur á hnútinn: Einstaklega ljótt að segja upp Ragnari Frey – Kemur með lausn til framtíðar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Margrét segist vera fórnarlamb samtryggingar valdsins – „Það er greinilega bannað að segja sannleikann“

Margrét segist vera fórnarlamb samtryggingar valdsins – „Það er greinilega bannað að segja sannleikann“