fbpx
Þriðjudagur 26.maí 2026
433Sport

Bruno Fernandes sakar goðsögn United um lygar – Vill fá símanúmerið hans

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 26. maí 2026 08:15

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bruno Fernandes, fyrirliði Manchester United, er kominn með nóg af gagnrýni Roy Keane í sinn garð og hefur svarað goðsögninni.

Keane hélt því fram í hlaðvarpi að Fernandes hefði verið að hugsa meira um að slá stoðsendingamet í ensku úrvalsdeildinni en árangur liðsins.

Portúgalinn sló vissulega metið, sem var í eigu Thierry Henry og Kevin De Bruyne, í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar um helgina en segir hann þessar fullyrðingar með öllu rangar.

„Ég hef alltaf virt Roy Keane fyrir það sem hann gerði fyrir félagið og ég tek gagnrýni almennt vel. En mér líkar ekki þegar fólk lýgur upp á mig,“ sagði Fernandes meðal annars.

Jafnframt sagði Fernandes að hann hafi óskað eftir því að fá símanúmer Keane frá fyrrum stjóra sínum hjá United, Ole Gunnar Solskjær, til að geta rætt við hann, en Keane hefur oft gagnrýnt Fernandes áður.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Arteta heiðarlegur – „Já, ég efaðist“

Arteta heiðarlegur – „Já, ég efaðist“
433Sport
Í gær

Enska úrvalsdeildin: West Ham féll þrátt fyrir sigur – Liverpool í Meistaradeildina

Enska úrvalsdeildin: West Ham féll þrátt fyrir sigur – Liverpool í Meistaradeildina
433Sport
Fyrir 2 dögum

Lætur stór orð falla um stöðu mála í Úlfarsárdal

Lætur stór orð falla um stöðu mála í Úlfarsárdal
433Sport
Fyrir 2 dögum

Liverpool að kaupa mikið efni

Liverpool að kaupa mikið efni
433Sport
Fyrir 2 dögum

Telja upphæðina allt of lága – „Maður eiginlega skammast sín“

Telja upphæðina allt of lága – „Maður eiginlega skammast sín“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Robbie Keane segir upp störfum

Robbie Keane segir upp störfum