fbpx
Föstudagur 15.maí 2026
Fréttir

Dóri DNA kvíðir mikið fyrir að hróflað verði við Borgarlínu og hjólar í Hildi – „Þá var hún talsmaður Borgarlínunnar“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 15. maí 2026 12:35

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Halldór Halldórsson tónlistarmaður og rithöfundur, sem er einnig þekktur undir listamannsnafninu Dóri DNA, segist kvíða mikið fyrir því að í kosningunum á morgun komist til valda í Reykjavík flokkar sem ætli að hrófla við Borgarlínu. Halldór segir Borgarlínuna vera gott verkefni sem komi borginni til góða og veltir fyrir sér hvers vegna Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins í borginni tali nú á mun neikvæðari nótum um verkefnið en hún gerði þegar hún hafi falast eftir því að Halldór tæki sæti á lista flokksins.

Halldór fjallar um þetta í yfirgripsmikilli færslu á X:

„Ég er svo ógeðslega hræddur um að flokkar komist til valda hérna sem ætla að hrófla við borgarlínunni. Bara rétt fikta nógu mikið í henni, til þess að þetta hætti að vera hágæða verkefni og verði þess í stað hin dæmigerða íslenska æpa. Þetta er það eina sem ég hef verið spenntur fyrir í Reykjavík, síðan ég man eftir mér.“

Hann segist vera að þróa innra með sér brynju til að setja upp og láta eins og honum sé alveg sama um niðurstöður kosninganna. Honum sé hins vegar alls ekki sama:

„Eins og mér sé dröll, en mér er ekki dröll.“

Halldór er þriggja barna faðir og segist nota bæði strætó og einkabíl mikið en að Borgarlína muni breyta ferðavenjum hans þótti hann muni eftir sem áður líklega nota einkabílinn meira.

Ekki gáfulegt

Halldór segir að lítið hafi farið fyrir gáfulegum umræðum um Borgarlínu:

„Þeir sem eru á móti, og eru með einhverjar þriðja flokks útfærslur að stinga upp á staðinn – nálgast borgarlínuna sem samgönguverkefni, en hún er svo miklu miklu miklu meira. Að láta eins og þetta sé einhver trilljarða bein fyrir Samfylkinga-fólk, bara plís. Þetta er sérsniðin lausn sem mun koma einstaklega vel við borgarbúa, sama hvort þeir nýti sér vagnana eða ekki. Hún saumar saman borg sem fúnkerar illa, hún mætir þörfum yngri kynslóðar og hún kallar á mjög organíska þéttingu, þar sem þjónusta og íbúðir byggjast í grennd við stoppistöðvar.“

Hann bendir til að mynda á umræðu um breytingar á deiliskipulagi Suðurlandsbrautar vegna Borgarlínu og segir að gagnstætt því sem haldið sé fram sé skipulagið:

„Ógeðslega flott og ógeðslega spennandi, býr til alvöru borgargötu í gegnum Reykjavík. Þarna mun vera stræti stútfullt af þjónustu og íbúum við fokking þjóðarleikvanginn!“

Hildur

Halldór gagnrýnir að Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins tali nú á mun neikvæðari nótum um Borgarlínuna en hún gerði áður:

„Þetta er manneskja sem ég hef heyrt tala af innlifun um borgarlínuna. Þetta er manneskja sem hefur hingað til staðið keik og kosið með öllum þeim ákvörðunum sem hafa komið þessu verkefni á þann stað sem það er í dag. Og svo er hún mætt til Tóta (Þórarins Hjartarsonar stjórnanda hlaðvarpsins Ein pæling, innsk. DV) að hnussa og fussa og láta eins og þetta sé eitthvað tómt píp úr einhverjum galgopum á Kaffi Vest. Djöfulsins drasl. Allavega þegar við Hildur hittumst á Hosiló í vetur og hún spurði mig hvort ég vildi taka sæti á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi kosningar – þá var hún talsmaður Borgarlínunnar. Hvað gerðist í millitíðinni – ég veit það ekki.“

Hann segir fullyrðingar sumra frambjóðenda í Reykjavík um að ætla að laga umferðina með því að bæta við hana bílum ekki standast skoðun:

„Ég veit ekki alveg hvað maður segir við þessu. Er þinn frambjóðandi heimskur? eða er hann lygari?“

Ljóst sé að eftir því sem borgin þenjist meira út aukist umferðin með tilheyrandi töfum:

„Borgarlínan er svo fokking vandað verkefni. Og það er ekki að ástæðulausu að það eru bara gamlir karlar sem skrifa greinar gegn henni – (og enginn þeirra minnist á skipulagsþáttinn) Á að neyða fólk upp í borgarlínuna? Nei maður. Alls ekki. En þú ert neyddur til að borga skatta mánaðarlega og pls setjum þá í eitthvað sem er alvöru.“

Halldór segir að hvernig sem fari í kosningunum á morgun muni hann jafna sig enda hafi hann verið alinn upp á vinstri sinnuðu heimili á valdatíma Davíðs Oddssonar:

„Við kunnum þá list að éta skít betur en aðrir.“

Bætir Halldór við að lokum að hann hafi aldrei kosið Samfylkinguna og aldrei hafi komið til greina að taka sæti á lista Sjálfstæðisflokksins.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Gufunesmálið: Landsréttur sakfelldi konuna sem blekkti Hjörleif

Gufunesmálið: Landsréttur sakfelldi konuna sem blekkti Hjörleif
Fréttir
Í gær

Sakborningur í einu frægasta heimilisofbeldismáli seinni ára afplánar utan fangelsis – Bráðaaðgerð og tveggja mánaða gjörgæsludvöl

Sakborningur í einu frægasta heimilisofbeldismáli seinni ára afplánar utan fangelsis – Bráðaaðgerð og tveggja mánaða gjörgæsludvöl
Fréttir
Í gær

Tvær stúlkur sýknaðar af ákæru um líkamsárás eftir klúður lögreglu, ákæruvalds og dómara

Tvær stúlkur sýknaðar af ákæru um líkamsárás eftir klúður lögreglu, ákæruvalds og dómara
Fréttir
Í gær

Össur segir Björgu daðra við Miðflokkinn – „Viðreisn ætlar sér greinilega að vinna til hægri í borgarstjórn“

Össur segir Björgu daðra við Miðflokkinn – „Viðreisn ætlar sér greinilega að vinna til hægri í borgarstjórn“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Allt á suðupunkti eftir leik Tindastóls og Grindavíkur: „Mjög ljótt af honum að gera þetta“

Allt á suðupunkti eftir leik Tindastóls og Grindavíkur: „Mjög ljótt af honum að gera þetta“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Óskað eftir tilnefningum til fegrunarviðurkenninga

Óskað eftir tilnefningum til fegrunarviðurkenninga