fbpx
Föstudagur 15.maí 2026
Fréttir

Mælir ekki með atkvæði á Björg konu sína af þessari ástæðu

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 15. maí 2026 11:03

Björg og Tryggvi Þór.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tryggvi Þór Hilmarsson auglýsingahönnuður ráðleggur kjósendum í Reykjavík að kjósa ekki konu hans, Björg Magnúsdóttir, oddvita Viðreisnar, ef þeir vilji einstakling í Ráðhúsið sem fer illa og óábyrgt með fjármuni almennings.

Parið hefur verið saman í rúm sex ár og í gamansömum skoðunarpistli sínum á Vísi ber Tryggvi Þór þau saman, hann er hvatvís eyðslukló meðan Björg „hagar samskiptum sínum við peninga eins og hún hafi lifað af móðuharðindin og beðið á bryggjunni þegar síldin hvarf.“

„Það er til dæmis útilokað að henda mat á okkar heimili. Ég hef nokkrum sinnum staðið í eldhúsinu á leiðinni að henda jógúrti sem rann út þegar Katrín Jakobsdóttir var forsætisráðherra. Þá horfir hún Björg mín á mig eins og ég sé að henda fjölskylduarfi. „Þetta sleppur alveg,“ segir hún.

Húfan sem hún notar á hverjum degi er útnöguð af Skugga, hundinum okkar. Ég bendi henni reglulega á að húfan sé með risa götum og líti út einsog hún hafi lifað tvö sjóslys í það minnsta. „Það ekkert að þessari húfu,“ segir hún.“

Tryggvi Þór segir erfitt að skrifa þetta en Björg hafi rétt fyrir sér.

Sjálfur segist hann eyðslukló og ef sig langi í eitthvað þá sé hann fljótur að kaupa sér hlutinn eftir því sem aðstæður á bankabók leyfa hverju sinni. Hvatvísin nái tökum á honum og hann smelli nokkrum sinnum og hluturinn er á leiðinni til hans.

„Á meðan ég kaupi hluti sem ég „þarf“ eða einmitt þarf ekki, þá hugsar hún: „Er þetta besta leiðin til að nota peningana?“ Sem er hræðilegt fyrir mig persónulega en líklega gott fyrir Reykvíkinga. Ég viðurkenni alveg að ég verð reglulega þreyttur á því að búa með manneskju sem skolar zip-lock poka og notar þá aftur en ég veit að svona manneskja fer líka vel með peninga annarra og ber virðingu fyrir þeim. Manneskja sem hugsar áður en hún eyðir. Manneskja sem vill að peningarnir nýtist sem best. Manneskja sem kaupir ekki bara eitthvað af því það hljómar vel.“

Tryggvi Þór segir konu sína klárustu og duglegustu manneskju sem hann þekkir. Eigi að síður mælir hann ekki með að kjósa hana ef „þú vilt áfram einhvern í Ráðhúsið sem eyðir sameiginlegum sjóðum kæruleysislega. En ef þú vilt manneskju sem tekur ábyrgð, hugsar hlutina til enda og mun hundrað prósent endurnýta kosningaplakötin í jólapappír í ár, þá ættirðu að kjósa hana.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Össur segir Björgu daðra við Miðflokkinn – „Viðreisn ætlar sér greinilega að vinna til hægri í borgarstjórn“

Össur segir Björgu daðra við Miðflokkinn – „Viðreisn ætlar sér greinilega að vinna til hægri í borgarstjórn“
Fréttir
Í gær

Segir það dylgjur hjá Kristrúnu og Degi að Sjálfstæðismenn ætli að selja Orkuveituna

Segir það dylgjur hjá Kristrúnu og Degi að Sjálfstæðismenn ætli að selja Orkuveituna
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Móðir ákærð eftir að ungar dætur hennar drukknuðu í kókaínvímu – Amman fann stúlkurnar í sundlauginni

Móðir ákærð eftir að ungar dætur hennar drukknuðu í kókaínvímu – Amman fann stúlkurnar í sundlauginni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íris Helga ákærð í yfir 60 ákæruliðum – Umsáturseinelti gegn þremur mönnum og ættingjum þeirra, ásakanir um barnaníð og kynferðisbrot

Íris Helga ákærð í yfir 60 ákæruliðum – Umsáturseinelti gegn þremur mönnum og ættingjum þeirra, ásakanir um barnaníð og kynferðisbrot