
Mikið hefur verið fjallað um hita og átök sem brutust út eftir leik Vals og KR í Bestu deild karla í gærkvöldi.
Fótbolti.net fjallaði um það laust fyrir hádegi í dag að átök hafi brotist út í leikmannagöngunum eftir 1-4 sigur KR og að Hermann Hreiðarsson, þjálfara Vals, sé gefið að sök að hafa kýlt í þindina á Ástbirni Þórðarsyni, leikmanni KR-inga.
Hermann hafði kvartað undan Ástbirni í viðtölum eftir leik og sagt að hann hafi komist upp með of mikið.
Í viðtali í Innkastinu á Fótbolta.net, sem nú er í loftinu á X-inu, er hins vegar rætt við Hemma og þar segir hann að búið sé að blása atburðarásina hressilega upp í fjölmiðlum.
Enn fremur segir hann að hann hafi rætt við Ástbjörn og málinu sé nú lokið af hálfu hans og KR-inga. Hermann segir leiðinlegt að athyglin beinist að þessum hlutum eftir frábæran fótboltaleik.
Eftir að viðtalið var spilað tók Elvar þó fram að hann stæði við innihald fréttarinnar sem birtist í dag.