

Steve McClaren hefur rifjað upp eina skiptið sem hann lenti í árekstri við Bruno Fernandes meðan þeir störfuðu saman hjá Manchester United.
McClaren, sem var aðstoðarþjálfari undir stjórn Erik ten Hag, sagði að deilan hafi komið upp eftir 3-0 tap United gegn Newcastle United á Old Trafford árið 2023.
Ástæðan var sú að Fernandes hafði ekki klappað stuðningsmönnum liðsins eftir leikinn.
„Við rifumst aðeins út af því. Ég var mjög ósáttur við frammistöðu liðsins og leikmannanna almennt,“ sagði McClaren.
Hann bætti þó við að málið hefði verið fljótt leyst.
„Daginn eftir sættumst við og allt var í góðu. Bruno er frábær með stuðningsmönnum 99 prósent af tímanum.“
McClaren hrósaði jafnframt fyrirliðanum og sagði hann njóta mikillar virðingar innan félagsins.