

Tveir standbrettamenn lentu í óskemmtilegu atviki í Kaliforníu þegar risavaxinn hákarl elti þá. Minnti atvikið einna helst á atriði úr hryllingsmynd.
Greint er frá málinu í Breska blaðinu The Guardian en það átti sér stað út af strönd Santa Barbara í Kaliforníufylki í Bandaríkjunum laugardaginn 25. apríl.
Tveir félagar, Ron Takeda og Tavis Boise, fóru út á standbretti (paddle board) þegar þeir tóku skyndilega eftir því að það var verið að elta þá.
„Tavis, er þetta höfrungur?“ spurði Ron þegar hann sá hreyfinguna í vatninu en Tavis var að taka upp myndband. En fljótlega kom í ljós að þetta var enginn brosandi og vinsamlegur höfrungur, upp úr sjónum sást greinilega stór hákarlsbakuggi. Uggi sem var greinilega að elta félagana, einkum Ron.
Tavis kallaði til félaga síns, „Ekki detta!“ en hélt þó áfram að mynda. Synti hákarlinn á um það bil 15 km/klst hraða. „Guð minn góður, hann er að fara til þín!“ hrópaði Tavis.
Sama í hvaða átt Ron beygði þá beygði hákarlinn líka. Hann var risastór, að minnsta kosti 4 metra langur.
„Guð minn góður, hann er enn þá að elta. Þetta er enn þá að gerast. Þetta er ofar mínum skilningi,“ sagði Tavis. Voru þeir núna báðir orðnir örvæntingarfullir. Þó þeir hefðu báðir séð hákarla í sjónum áður þá höfðu þeir aldrei verið eltir og aldrei verið svo nálægt þeim.
Einbeitti Ron sér að því að standa beinn og að halda brettinu á floti. Reyndi hann að hugsa ekki um risann sem var að elta hann. Í nokkur skipti hélt hann að hákarlinn væri horfinn en svo leit hann við og sá uggann.
Blessunarlega gafst hákarlinn upp á eltingarleiknum og lét sig hverfa á endanum. Myndbandið er um mínúta að lengd en í heild en eltingarleikurinn stóð yfir í að minnsta kosti fimm mínútur.
Félagarnir, fegnir að vera á lífi, sýndu vinum sýnum sem vinna hjá Haffræðistofnun Bandaríkjanna myndbandið. Töldu þeir að um væri að ræða hvíthákarl (great white shark). En það er sama tegund og sjálf ókindin, mannætuhákarlinn í kvikmyndinni Jaws frá árinu 1975.
Settu þeir svo myndbandið á samfélagsmiðla og hefur það fengið mikið áhorf og viðbrögð. Grunuðu sumir að um gervigreindarmyndband væri að ræða.
„Það er ljóst að hákarlinn elti okkur lengi,“ sagði Ron. „Ég er viss um að hann var bara forvitinn. Hann snerti okkur aldrei. Við erum með það á hreinu hvað við eigum að gera ef við lendum aftur í þessu. Ekki detta!“