

Jóhann Skúli Jónsson, gjarnan kallaður Jói Skúli, var gestur Helga Fannars í nýjasta þætti af Íþróttavikunni og með þeim var einnig Hörður Snævar Jónsson.
KA fer enn eitt árið afar hægt af stað í Bestu deild karla.
„Maður óttast mest að þetta verði sálrænt, þeir hugsi að þeir byrji alltaf illa,“ sagði Hörður.
Hallgrímur Jónasson þjálfari lét sína menn heyra það eftir tap á heimavelli gegn nýliðum Keflavíkur í síðasta leik.
„Mér fannst þetta flott hjá Hadda eftir leik. Þeir áttu ekkert skilið úr þessum leik og Keflvíkingar voru miklu betri.
Þeir þurfa að fara að finna sitt lið og salla inn stigum því þetta er hörkuhópur,“ sagði Hörður einnig.
„Ég get ekki haft áhyggjur af þeim með þetta lið en það sem veldur mér áhyggjur er að þessi leikmannahópur ætlar sér í Evrópu,“ sagði Jóhann um málið.
Nánar í spilaranum.