

Ungur íslenskur karlmaður lét lífið í fallhlífastökki fyrir utan Óðinsvé í Danmörku á sunnudaginn. Vísir greinir nú frá nafni hins látna, en hann hét Tristan Magni Hauksson og var hann 24 ára gamall þegar hann lést.
Slysið er til rannsóknar hjá lögreglunni í Danmörku en Tristan Magni var í sínu fyrsta einstaklingsstökki á fallhlífastökksnámskeiði hjá Odense Faldskærmscenter. Fallhlífin opnaðist ekki með eðlilegum hætti í stökkinu.
Tristan kom frá Selfossi en fluttist nýlega til Danmerkur til að stunda þar nám við lýðháskóla.
Sjá einnig: 24 ára Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys í Danmörku