

Gylfi Jónu Arnbjarnarson, fyrrverandi forseti Alþýðusambands Íslands, furðar sig á frétt Morgunblaðsins um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu. Frétt sem ber yfirskriftina „Kristrún vill sjálf dæma“.
„Þetta er furðuleg frétt en nokkuð dæmigerð um nálgun MBL á þessa ESB umræðu,“ segir Gylfi um fréttina sem fjallar um að Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra áskilji sér eins konar neitunarvald á aðildarsamningi við Evrópusambandið. Það er að hún myndi ekki bera samniginn undir þjóðina nema hann stæðist kröfur sínar.
Gylfi segir þetta fullkomlega eðlilegt og gagnrýnir Morgunblaðið fyrir að reyna að gera þetta tortryggilegt.
„Nú er það þannig að ég hef nokkuð haldgóða reynslu af samningaviðræðum úr mínu fyrra starfi og var í forystu samninganefndar Alþýðusambandsins í mörgum samningalotum. Í öllum þeim viðræðum var ferlið það sama, fyrst voru samningsmarkmiðin lögð fyrir samninganefndir aðildarfélaganna. Síðan var farið í viðræður við atvinnurekendur og oft var tekist á eins og gengur. Í öllum tilfellum var það hlutverk samninganefndar að ræða það og meta, hvort sá árangur sem náðst hafði yrði lagður í atkvæðagreiðslu félagsmanna verkalýðsfélaganna,“ segir Gylfi.
Ávallt sé um þrefalda ákvörðunartöku að ræða og ef að samninganefndir telji að ekki hafi náðs tilhlýðilegur árangur var ekki um annað að ræða en að halda viðræðum áfram.
„Að vekja upp einhverja tortryggni á þessu hlutverki forsætisráðherra er því hrein og klár afvegaleiðun umræðunnar!“ segir Gylfi að lokum.