
Miklar tafir hafa orðið á ferðum Herjólfs til og frá Vestmannaeyjum undanfarið og veldur þar annars vegar ástand skipsins og hins vegar ónóg sjódýpt í Landeyjahöfn.
Sigling Herjólfs frá Þorlákshöfn til Vestmannaeyja í gærkvöld tók tæpar sjö klukkustundi. RÚV greinir frá. Kom skipið til hafnar í Vestmannaeyjum um kl. hálfþrjú í nótt. Annar rafmótor Herjólfs bilaði fyrir hálfum mánuði og vegna bilunarinnar og sjóalags gat skipið aðeins siglt á um fimm til sex sjómílna hraða í gærkvöld.
Erlingur Guðbjörnsson greinir frá því að sonur hans, sem keppir í handbolta, hafi þurft að vera samtals 11 klukkutíma í siglingu vegna keppnisferðar. Hann segir á segir á Facebook-síðu sinni:
„Ég sit hér kl 01.00 að skrifa þetta hér, að bíða eftir syni mínum 15 ára, sem fór í morgun með Herjólfi til að keppa í handbolta. Ferðin í morgun tók c.a 4 tíma en ferðin heim mun taka hátt í 7 tíma. Hátt í 11 tíma ferðalag. Skipið gengur núna á rúmum 7 mílum en ætti við bestu aðstæður að ganga 13-14 mílur. Þ.e ef allt væri í lagi. Þetta er ástand sem við sem búum hér í Vestmannaeyjum getum ekki sætt okkur lengur við. Það eru endalausir biðlistar og erfitt að taka skyndiákvarðanir að fara í bæinn. Maður þarf að panta með margra daga fyrirvara ef maður ætlar að vera öruggur með ferð. Þetta hefur skapað mikið álag á Íbúa, fyritæki og starfsfólk Herjólfs. Ég vil hér nota tækifærið að þakka þessu frábæra fólki sem starfar hjá Herjólfi og staðið vaktina til að koma okkur á milli lands og eyja. Þau eiga stórt hrós skilið.
Nú þarf bara eitthvað að fara að gerast. Þetta ástand er hreinlega ekki í boði lengur. Hvorki fyrir okkur íbúana, fyritækin né starfsfólk Herjólfs.“
Erlingur segir í samtali við DV að Vestmannaeyingar séu orðnir leiðir á upplýsingaleysi og biðlistum. „Það hefur vissulega verið þannig veður að það hefur ekki verið hægt að gera neitt varðandi ástandið í Landeyjum en vandinn er sá að það ekkert varaskip á móti þessu. Núna er þessi bilaður, hann er að sigla á einni skrúfu, það er bara ákveðið öryggi í því að hafa tvær skrúfur.“
Erlingur segir vandræðaástand framundan vegna viðburða sem eru á döfinni og fyrirsjáanlegra tafa og vandræða.
„Svo er að detta í sumar, það er Puffin Run hlaupið um helgina, metþátttaka í skráningu. Svo eru fullt af fyrirtækjum hér sem eru að tapa á þessu, bæði fyrirtæki í ferðaþjónustu og sjávarútvegi. Ég þarf að komast upp á land á fimmtudaginn, maður er á biðlista, það eru orðnir biðlistar í allar ferðir, jafnvel allt upp í 30 bílar á biðlista, sem er ekki gott.“
Undirskriftalisti hefur verið birtur á island.is þar sem krafist er úrbóta vegna ástandsins í Landeyjahöfn. Þar segir:
„Ófremdarástandið sem nú ríkir í Landeyjahöfn er orðið alvarlegt áhyggjuefni fyrir bæði íbúa og atvinnulíf í Vestmannaeyjum. Orsökin er ónógt dýpi í höfninni, sem hefur leitt til þess að Herjólfur getur ekki siglt tíl og frá Landeyjahöfn. Þetta hefur í för með sér ófyrirsjáanleika í samgöngum sem bitnar beint á daglegu lífi fólks.
Fyrir íbúa Vestmannaeyja eru reglulegar og áreiðanlegar samgöngur lífsnauðsyn. Þegar siglingar raskast þurfa íbúar að fara í lengri siglingar til og frá Þorlákshöfn. Slíkt ferðalag veldur töfum og auknum kostnaði.
Efnahagslegu áhrifin eru ekki síður alvarleg. Fyrirtæki í Vestmannaeyjum, t.d. í sjávarútvegi og ferðaþjónustu, reiða sig á skilvirkar flutningsleiðir. Þegar siglingar raskast tefjast vöruflutningar, sem getur leitt til taps á tekjum, aukins rekstrarkostnaðar og skerts samkeppnishæfis.
Því krefjumst við þess að ráðamenn landsins bregðist við ástandinu strax og fái dæluskip til landsins sem ræður við verkefnið.“
Ása Berglind Hjálmarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi, segir að ástandið í samgöngumálum til Vestmannaeyja sé óásættanlegt. Hún segir að stjórnarþingmenn séu að beita sér í málinu þó ekki fari það hátt. Ása birti eftirfarandi Facebook-færslu um málið:
„Ástandið í samgöngumálum til Vestmannaeyja er algjörlega óásættanlegt. Ef það fellur aurflóð á veg þá er mætt með viðeigandi búnað til að moka í burtu flóðið, það sama þarf að gerast í Landeyjahöfn og erfitt að sjá að hægt sé að bíða eftir að öflugra sanddæluskip komi í haust.
Við skiljum að íbúar í Vestmannaeyjum eru búnir að fá nóg enda áralangur vandi sem blasir við í þessum málum. Ég heyri líka að það er kallað eftir viðbrögðum okkar þingmanna stjórnarflokkanna sem ég skil en vil segja í því samhengi að við erum að beita okkur í þessu máli þó svo við séum ekki að hrópa á torgum. Við höfum beint aðgengi að ráðherrum og nýtum okkur það vitandi að það er líklegra til að bera árangur heldur en gildishlaðnar yfirlýsingar.“