fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Fréttir

Neita að annast áfram líksnyrtingu og kistulagningu við óbreyttar aðstæður

Jakob Snævar Ólafsson
Föstudaginn 24. apríl 2026 14:30

Líksnyrtingu og kistulagningu hefur verið sinnt í safnaðarheimili Þórshafnarkirkju en aðstæður þar, til að sinna þessu, eru sagðar ekki uppfylla kröfur um persónuvernd og heilbrigðiseftirlit. Mynd: Skjáskot/Já.is.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hópur heilbrigðistarfsfólks á Þórshöfn sem annast hefur líksnyrtingu og kistulagningar á staðnum neitar að halda því áfram verði ekki gerð bragarbót á þeirri aðstöðu sem er til staðar í þorpinu til sinna þessari þjónustu. Nauðsynlegt sé að koma upp rúmmeiri líkgeymslu með betri aðstöðu til að sinna líksnyrtingu og gera annað sem þurfi vegna kistulagninga. Við núverandi aðstæður séu hvorki persónuvernd tryggð né að kröfur heilbrigðiseftirlits sé uppfylltar.

Þetta kemu fram í opnu bréfi starfsfólksins til sveitarstjórnar Langanesbyggðar en auk þeirra skrifa undir bréfið tvö kvenfélög á staðnum, safnaðarnefnd Þórshafnar, starfsfólk hjúkrunarheimilisins í þorpinu, sem heitir Naust, og loks björgunarsveitin Hafliði.

Bréfið var tekið fyrir fundi á byggðaráðs Langanesbyggðar á miðvikudag.

Enginn aðili á Þórshöfn er á skrá yfir aðila með gild útfararþjónustuleyfi en til að geta boðið upp á líksnyrtingu og kistulagningar á staðnum hefur því verið sú leið farin að umræddur hópur heilbrigðisstarfsfólks hefur tekið þetta að sér. Hópurinn segir hins vegar í bréfinu að tekin hafi verið sú ákvörðun að sinna ekki lengur líksnyrtingu eða kistulagningu á Þórshöfn við óbreyttar aðstæður. Núverandi aðstaða sé ekki viðunandi fyrir starfsfólk, skjólstæðinga eða aðstandendur og standist hvorki kröfur persónuverndar né heilbrigðiseftirlits.

Safnaðarheimili Þórshafnarkirkju hefur verið nýtt fyrir líksnyrtingar og kistulagningar en það er á jarðhæð kirkjunnar.

Óviðunandi

Segir í bréfinu að kælir í safnaðarheimilinu sé of lítill til að geta sinnt þar líksnyrtingu en lík eru fyrst geymd í líkkæli utan safnaðarheimilisins en í bréfinu segir að til að koma líki frá líkkæli yfir í safnaðarheimilið þurfi að bera lík út á bílaplan við hlið fjölfarins göngustígs á timburbretti, með handafli.

Dyr inn í kæli sem og safnaðarheimili séu mjög þröngar fyrir burð milli rýma. Safnaðarheimilið sé með glugga allan hringinn sem ekki séu gluggatjöld fyrir nema að hluta. Enginn vaskur sé í rýminu nema eldhúsvaskur svo ef að nota þurfi rennandi vatn, við líksnyrtinguna, þurfi að nota eldhúsið sem sé annars nýtt til veisluhalds. Ekki sé heldur aðstaða til þess að henda sóttmenguðu rusli eða ganga frá sóttmenguðu líni.

Segir enn fremur að aðstæður til líksnyrtingar þurfi að vera þannig upp settar að um tvö rými sé að ræða, annað til kælingar og hitt til líksnyrtingar þar sem sé góður vaskur, skápar til þess að geyma búnað og hækkanlegur líkbekkur á hjólum. Rýmið þurfi að vera nægilega rúmgott til þess að hægt sé að komast vel þar um og vinna allan hringinn í kringum bekkinn.

Áfram

Segja bréfritarar að slíkt rými sem nýtt sé til líksnyrtingar geti einnig nýst til þess að leyfa aðstandendum að sitja hjá og kveðja þann látna. Slíkt rými geti einnig þjónað hlutverki lítillar kapellu ef vandað sé til verka og það gert hlýlegt. Ef farin yrði sú að leið að reisa lítið timburhús eða koma fyrir gámi undir þjónustuna væri heppilegasta staðsetningin við hjúkrunarheimilið Naust eða heilsugæsluna á staðnum.

Heilbrigðisstarfsfólkið sem hefur sinnt líksnyrtingu segist vera mjög umhugað um að þessi þjónusta verði áfram til staðar á Þórshöfn og sé tilbúið að leggja sitt af mörkum til þess að bæta aðstöðu til líksnyrtingar. Það sé samfélaginu mikilvægt að fundin sé lausn til að hægt sé að kistuleggja á Þórshöfn svo að aðstandendur þurfi ekki að flytja ástvini sína milli sveitarfélaga til líksnyrtingar og kistulagningar og koma svo hinum látna aftur til Þórshafnar með tilheyrandi kostnaði og fyrirhöfn, fyrir jarðarför:

„Við vonumst til að geta fundið sameiginlega farsæla lausn á málinu og eru tilbúin til að leggja okkar að mörkum.“

Byggðaráð Langanesbyggðar samþykkti að fela Birni S. Lárussyni sveitarstjóra að ræða við forstjóra Heilbrigðisstofnunar Norðulands (HSN) um að fá að staðsetja slíka aðstöðu fyrir, líkgeymslu og líksnyrtingu við hlið heilsugæslustöðvarinnar í þorpinu. Það sé einróma mat byggðaráðs að sú staðsetning sé best og engin önnur staðsetning taki henni fram. Byggðaráð segist fara að sinni ekki fram á neina aðra skuldbindingu af hálfu HSN en að heimila staðsetninguna á sinni lóð.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Slysið í Danmörku: Minnast Íslendingsins sem lést

Slysið í Danmörku: Minnast Íslendingsins sem lést
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

„Sonur minn var því miður ekki sá eini“

„Sonur minn var því miður ekki sá eini“
Fréttir
Í gær

Fannst látinn við Háafoss

Fannst látinn við Háafoss
Fréttir
Í gær

Björgunarsveitir kallaðar út á hæsta forgangi eftir að sást til manns í gili við Háafoss

Björgunarsveitir kallaðar út á hæsta forgangi eftir að sást til manns í gili við Háafoss
Fréttir
Í gær

Þrír handteknir eftir að þeir neituðu að gefa upp nöfn sín

Þrír handteknir eftir að þeir neituðu að gefa upp nöfn sín
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sjö ára drengur festist í frárennsli sundlaugar og drukknaði á afmælisdaginn – „Barðist eins og ljón“

Sjö ára drengur festist í frárennsli sundlaugar og drukknaði á afmælisdaginn – „Barðist eins og ljón“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íslendingar sviknir um milljónir á Kanarí – Tryggingafélag varar við læknastofu

Íslendingar sviknir um milljónir á Kanarí – Tryggingafélag varar við læknastofu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tveir af hverjum þremur á fjárhagsaðstoð í Reykjavík eru útlendingar

Tveir af hverjum þremur á fjárhagsaðstoð í Reykjavík eru útlendingar