Hefur áhyggjur af kosningunum eftir að engir framboðslistar bárust
FréttirBjörn S. Lárusson sveitarstjóri Langanesbyggðar gaf til kynna á fundi byggðaráðs sveitarfélagsins í gær að hann hefði áhyggjur af því að kjörsókn í sveitarfélaginu verði lítil í sveitarstjórnarkosningunum 16. maí næstkomandi. Rekur hann það helst til þess að engir framboðslistar bárust og því verður óhlutbundin kosning í Langanesbyggð en það er einnig kallað óbundin kosning, Lesa meira
Neita að annast áfram líksnyrtingu og kistulagningu við óbreyttar aðstæður
FréttirHópur heilbrigðistarfsfólks á Þórshöfn sem annast hefur líksnyrtingu og kistulagningar á staðnum neitar að halda því áfram verði ekki gerð bragarbót á þeirri aðstöðu sem er til staðar í þorpinu til sinna þessari þjónustu. Nauðsynlegt sé að koma upp rúmmeiri líkgeymslu með betri aðstöðu til að sinna líksnyrtingu og gera annað sem þurfi vegna kistulagninga. Lesa meira
Fjöldi atriða í áætlun um mat á umhverfisáhrifum umdeilds vindorkuvers sagður óskýr – „Hvaðan eru þær upplýsingar komnar?“
FréttirBirt hefur verið í Skipulagsgátt álit Húsnæðis- mannvirkja og skipulagsstofnunar (HMS) um áætlun um mat á umhverfisáhrifum fyrirhugaðrar byggingu vindorkuvers á Langanesi. Áformin hafa verið umdeild, meðal annars hafa landeigendur í næsta nágrenni gagnrýnt þær. Í áliti HMS er gerður fjöldi athugasemda við áætlunina og nefnd ýmis atriði í henni sem skýra þurfi betur. Um Lesa meira
Ætla ekki að selja 230 ára ættaróðalið fyrir skammtímagróða einnar kynslóðar
FréttirNokkuð hefur borist af athugasemdum við áætlun um mat á umhverfisáhrifum umfangsmikils vindorkuvers sem til stendur að reisa á Brekknaheiði og Sauðaneshálsi á Langanesi. Meðal þeirra sem senda inn athugasemdir eru landeigendur sem eiga jörð skammt frá fyrirhuguðu framkvæmdasvæði. Jörðin hefur verið í eigu sömu fjölskyldu allt frá árinu 1795 en í athugasemdinni er vindorkuverinu Lesa meira
Áhyggjur af sjónmengun vegna tuga vindmylla sem til stendur að reisa skammt frá Þórshöfn
FréttirUmfangsmiklar framkvæmdir við vindorkuver á Brekknaheiði og Sauðaneshálsi skammt austur af þorpinu á Þórshöfn á Langanesi eru nú í undirbúningi. Ætlunin er að orkuverið samanstandi af allt að 74 vindmyllum sem verði hátt í 210 metrar á hæð. Vindmyllurnar eiga að skila alls 532,8 megavöttum af orku. Skipulags- og umhverfisnefnd Langanesbyggðar telur að í mati Lesa meira
Segir foreldra horfa til Langanesbyggðar í leit að kyrrð og ró
FréttirBjörn S. Lárusson sveitarstjóri Langanesbyggðar segist hafa orðið var við töluverðan áhuga hjá bæði fólki og fyrirtækjum á að flytja í sveitarfélagið. Segist hann meðal annars hafa fengið fyrirspurnir frá ungu fólki sem sé í leit að kyrrð og ró til að ala upp börn. Það sem hins vegar helst standi auknum flutningi fólks og Lesa meira
„Annar hver Íslendingur er sérfræðingur í myglu“
FréttirEins og DV hefur fjallað um stendur Sveitarfélagið Langanesbyggð frammi fyrir því að hafa þurft að færa starfsemi Grunnskólans á Þórshöfn í nýtt húsnæði vegna myglu. Næsta vetur mun starfsemi skólans því fara fram í þremur öðrum húsum í þorpinu. Sveitarstjórn ákvað fyrr í sumar að beina sjónum að þeirri framtíðarlausn að byggja nýjan skóla Lesa meira
Íbúar á Þórshöfn kvarta sáran undan hávaða og mengun – „Ég get ekki sætt mig við það að þetta sé komið til að vera svona í framtíðinni“
FréttirÁ fundi skipulags- og umhverfisnefndar Langanesbyggðar í liðinni viku voru teknar fyrir kvartanir nokkurra íbúa á Þórshöfn vegna rykmengunar og mikils hávaða frá framkvæmdum við höfnina í þorpinu. Af gögnum sem fylgja fundargerð fundarins má ráða að íbúarnir, sem búa flestir skammt frá hafnarsvæðinu, séu orðnir langþreyttir á ástandinu en framkvæmdirnar hafa staðið yfir undanfarna Lesa meira
Leigja íbúðarhús í staðinn fyrir myglaða skólann
FréttirEins og fram hefur komið í fréttum er húsnæði Grunnskólans á Þórshöfn ónothæft vegna myglu og stefnt er að því að byggja nýjan skóla. Kennsla og önnur starfsemi í skólanum verður flutt annað og í því skyni var samþykkt á síðasta fundi byggðaráðs Langanesbyggðar að gera samning um leigu á íbúðarhúsi sem er skammt frá Lesa meira
Mygla knýr á um nýjan grunnskóla – Gæti kostað hvern íbúa eina og hálfa milljón
FréttirSveitarfélaginu Langanesbyggð er vandi á höndum vegna myglu sem fundist hefur í grunnskólanum í þorpinu á Þórshöfn, sem tilheyrir Langanesbyggð, en það er eini grunnskóli sveitarfélagsins. Kannaðar hafa verið mögulegar lausnir og nú stefnir í að farin verði sú leið að byggja nýjan grunnskóla en áætlaður kostnaður við það nemur um einni og hálfri milljón Lesa meira
