fbpx
Þriðjudagur 21.apríl 2026
Fréttir

Íbúum á Álftanesi brugðið eftir að steypumúr var reistur – Vilja svör frá bæjarstjórn Garðabæjar

Kristinn H. Guðnason
Þriðjudaginn 21. apríl 2026 12:30

Íbúarnir eru hissa á veggnum. Enginn kynning fór fram.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íbúar við Höfðabraut á Álftanesi hafa krafist fundar með bæjaryfirvöldum í Garðabæ eftir að Golfklúbbur Álftaness byrjaði að reisa risavaxinn steypuvegg við sjóinn. Framkvæmdin skyggir fyrir útsýni íbúana og hefur ekki verið grenndarkynnt.

„Við viljum fá að ræða við bæjaryfirvöld um þetta og fá að vita hvað sé í  hyggju,“ segir Þorkell Helgason, stærðfræðingur og íbúi við Höfðabraut. Hann og sjö aðrir íbúar við götuna hafa sent bænum bréf vegna steypuveggs sem Golfklúbbur Álftaness er að reisa við sjóinn.

„Okkur finnst sjóvarnargarðurinn sem er þarna fyrir fallegur. Þetta mun gnæfa yfir hann og skyggja á mest alla leiðina,“ segir Þorkell. En víkin sem hann stendur við kallast Helguvík og er vestanmegin á nesinu.

Ferkantaðir steypuhnullungar

Íbúarnir tóku eftir því fyrir nokkrum vikum síðan að byrjað var að ferma stóra ferkantaða steypuhnullunga, kannski 130 sinnum 50 sentimetra að stærð. Fyrir um viku síðan hófst svo uppröðun á þeim. Verkið er augljóslega ekki klárað en aðallega er unnið við það um kvöld og helgar.

Kom þetta íbúunum mjög á óvart enda hafði ekkert verið rætt við þá að hálfu bæjarins. Þeir voru ekki spurðir árlits og málið var ekki grenndarkynnt.

„Við höfum spurt eftir framkvæmdaleyfinu en ekki séð það,“ segir Þorkell.

Augljóslega sé veggurinn reistur til þess að verja golfvöllinn fyrir náttúruöflunum. Þetta komi þó samt á óvart því að verið sé að hækka sjóvarnargarðinn. Byrjað sé á því vestan við golfvöllinn en sú framkvæmd muni væntanlega halda áfram.

Bjarga verðmætum

Málið hefur verið rætt á samfélagsmiðlum. Til dæmis í íbúagrúbbu Álftaness. Þar svarar fulltrúi golfklúbbsins, Guðjón Þór Þorsteinsson, fyrir þetta.

„Er ekki í lagi að klára framkvæmdina og dæma svo? Það á eftir að keyra mold að veggnum og tyrfa til að fegra ásýnd veggjarins, finnst fólk vera æsa sig full mikið yfir þessu þar sem golfklúbburinn er einungis að reyna að bjarga verðmætum. Er ekki rétt að bíða og sjá hvort okkur í golfklúbbnum takist ekki að gera þetta þannig að þetta verði okkur ekki til skammar. Við leggjum mikinn metnað í að halda öllu fallegu í kringum völlinn okkar og það er ekkert að fara að breytast,“ segir hann.

Veggurinn sem um ræðir er ekki kláraður enn þá. Mynd/Facebook

Skrýtið mannvirki

Þorkell segir að til standi að flytja golfvöllinn á endanum og því sé því borið við að um bráðabirgðaframkvæmd sé að ræða.

„Eins og gengur á Íslandi þá tekur nú sumt lengri tíma en áætlað er. Svo höfum við enga tryggingu fyrir því að þetta verði fjarlægt,“ segir hann. Þá hefur hann takmarkaða trú á því að sú aðferð að bera mold að og tyrfa verði til að fegra ásýndina. „Það held ég að verði skrýtið mannvirki,“ segir hann.

Sendu bréf

Eins og áður segir sendu íbúarnir við Höfðabraut Almari Guðmundssyni bæjarstjóra bréf á föstudag. Engin viðbrögð hafa borist en bréfið hljóðar svo:

 

„Til bæjarstjóra Garðabæjar, Almars Guðmundsonar

Við undirrituð, sem erum öll íbúar við Höfðabraut á Álftanesi, köllum eftir tafarlausum fundi með bæjarstjóra.

Tilefnið eru framkvæmdir sem hafa verið í gangi við að hlaða upp steypuhlunkum milli sjóvarnargarðs við Helguvík og Halakotstjarnar. Sjá meðfylgjandi myndir.

Í nokkrar vikur hafa umræddir steypuhlunkar verið fluttir hingað en tilgangur þeirra var íbúum algerlega óviss þar til en uppröðun þeirra hófst um síðustu helgi. Aðspurður upplýsti formaður Golfklúbbs Álftaness í símtali þann 12. apríl s.l. að framkvæmdin væri á þeirra vegum en jafnframt játaði hann að framkvæmdaleyfi lægi ekki fyrir og skilja mátti að um það hefði ekki verið sótt, en að það yrði gert.

Strax daginn eftir, 13. apríl var haft samband við skipulagsstjóra Garðabæjar og virtist hann vart eða ekki vita af þessari framkvæmd. Í skeyti sem einn af undirrituðum sendi honum sama dag var spurt um hvort framkvæmaleyfi fyrir umræddu verki hefði verið gefið út. Svar barst ekki svo að hringt var í hann 15. apríl og var þá sagt að leyfið hefði verið veitt daginn á undan, þ.e. 14. apríl.

Allt bendir til þess að í mesta lagi hafi liðið einn eða tveir sólarhringar frá því að sótt hafi verið um leyfi þar til það hafi verið veitt. Og hvort tveggja löngu eftir að framkvæmdir hófust.
Öll þessi málsmeðferð brýtur í bág við ákvæði reglugerðar nr. 772/2012 um framkvæmdaleyfi. Í 8. gr. hennar er m.a. kveðið á um að grenndarkynning skuli fara fram í tilvikum sem þessum.

Við undirrituð köllum því eftir tafarlausri grenndarkynningu, þótt um síðir sé, en á meðan verði séð til þess að framkvæmdir verði stöðvaðar.

Við undirrituð höfum margt út á þessa framkvæmd að setja, en einkum þetta:

  1.  
    1. Af hlunkamúrnum er mikil sjónmengun, en hann skyggir á hinn fallega hlaðna sjóvarnagarð sem er úr náttúrulegu grjóti. Hlunkarnir blasa strax við frá hringveginum um Álftanesið og skerða jafnvel sýn út á sjóinn. Málið varðar því ekki aðeins þá íbúa sem næstir búa heldur alla sem fara um hringveginn.
    2. Sagt er að hlunkamúrinn sé til varnar golfvellinum. Í fyrsta lagi er það mjög til efs að svo sé. Það gerist vissulega að grót og þang berist í miklum vetrarveðrum yfir sjóvarnargarðinn, en það gerist þó það sjaldan og í það litlum mæli að það hlýtur að vera hagkvæmara að hreinsa eftir slíka uppákomur, eins og gert hefur verið hingað til, frekar en að reisa mikinn múr.
    3. Væntanlega stendur til að styrkja og hækka sjóvarnargarðinn, eins og þegar er byrjað á meðfram veginum út að Hliði. Þar með ætti mjög að draga úr þeim vanda sem sagður er. Jafnframt má spyrja hvort hlunkamúrinn verður ekki hindrun þegar kemur að umbótum á sjóvarnargarðinum.
    4. Hlunkamúrnum mun ætlað að hindra að grjót og þang, sem kemst yfir sjóvarnargarðinn, fari lengra. Það mun þá hlaðast upp á göngustígnum milli garðana. Hver ætlar að hreinsa þar til? Eða á að eyðileggja þennan mikilvæga göngustíg, að ekki sé talað um skarðið niður í Helguvíkina sjálfa.

Tekið skal fram að andmæli þessi eru ekki gegn golfvellinum sem slíkum, heldur gegn misvitri athafnasemi forystumanna golfklúbbsins. Engan vegin er amast við vel hirtum golfvelli sem fellur inn í umhverfið.

Mikilvægt er sá fundur sem við köllum eftir fari fram á staðnum, svo sem í Haukshúsi.

Við endurtökum kröfu okkar um tafarlausan opin fund með bæjarstjóra og því af starfsliði hans sem hann kýs.

Vegna þessa hvað tíminn er naumur hefur ekki tekist á ná í alla þá íbúa sem málið snertir, en við undirrituð ríðum á vaðið.

Virðingarfyllst, á Álftanesi, 17. apríl 2026,“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Sólveig bendir á sturlaða staðreynd um rausnarlega launahækkun Höllu – „Siðferðislega rangt og það grefur undan trausti og trúverðugleika“

Sólveig bendir á sturlaða staðreynd um rausnarlega launahækkun Höllu – „Siðferðislega rangt og það grefur undan trausti og trúverðugleika“
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

KAPP og Laxey undirrituðu samning í Barcelona

KAPP og Laxey undirrituðu samning í Barcelona
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Tók lögreglumann hengingartaki í bílakjallara og þrengdi að öndunarvegi hans

Tók lögreglumann hengingartaki í bílakjallara og þrengdi að öndunarvegi hans
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Ása segir frá augnablikinu þegar eiginmaðurinn játaði allt fyrir henni – „Hann virtist mjög taugaóstyrkur“

Ása segir frá augnablikinu þegar eiginmaðurinn játaði allt fyrir henni – „Hann virtist mjög taugaóstyrkur“
Fréttir
Í gær

Albani ákærður fyrir fíkniefnabrot og peningaþvætti á Akureyri

Albani ákærður fyrir fíkniefnabrot og peningaþvætti á Akureyri
Fréttir
Í gær

Vísað frá Íslandi – Leitaði ráða hjá gervigreind um hvernig svara ætti lögreglu

Vísað frá Íslandi – Leitaði ráða hjá gervigreind um hvernig svara ætti lögreglu