fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Vala sat yfir deyjandi móður sinni og var svo handtekin

Kristinn H. Guðnason
Fimmtudaginn 16. apríl 2026 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jóhanna Vala Höskuldsdóttir, listakona, var handtekin ásamt föður sínum og bræðrum eftir að hafa setið banaleguna yfir móður sinni sem tók eigið líf vegna langra veikinda. Sjálfsvígið var hins vegar flóknara og tók lengri tíma en móðir hennar hafði ætlað.

„Hún sá manneskjuna fyrir það sem hún er,“ segir Jóhanna Vala, eða Vala eins og hún er gjarnan kölluð í viðtali við Ásdísi Olsen á Samstöðinni. „Við áttum í rosalega nánum tengslum. Stundum kannski of nánum. Það var eins og nafnastrengurinn slitnaði aldrei alveg.“

Beið eftir frumvarpi um dánaraðstoð

Vala lýsir því þegar móðir hennar tók eigið líf fyrir rúmum þremur árum síðan eftir að hafa glímt við langvarandi veikindi. Fjölskyldan stóð með henni í gegnum dauðastríðið og var handtekin í kjölfarið.

Vala segir að móðir hennar hafi greinst þegar hún sjálf hafi verið á unglingsaldri. Veikindin urðu sífellt erfiðari og verkirnir meiri.

„Það voru alltaf að koma upp ný og ný æxli. Nýtt og nýtt alls konar. Þetta endar með því að hún er orðin það verkjuð að allar pillur eru hættar að virka á þetta, læknarnir hættir að geta gert neitt,“ segir hún.

Móðir hennar hafi verið farin að bíða eftir því að frumvarp um dánaraðstoð færi í gegn á Alþingi. En umræðan er flókin og stór og frumvarpið er enn þá ekki farið í gegn.

„Hún tekur þetta í sínar hendur. Hún tekur líf sitt,“ segir Vala.

Passa pabba

Móðir hennar lét Völu vita af þessu fyrir fram. Hún hafi sjálf verið mjög andlega þenkjandi, „villikerling og hálfgerður indjáni“ eins og Vala lýsir henni.

„Hún sagði: Æji Vala, ekki vera að dramatísera þetta þegar ég er farin. Ég er bara að fara heim,“ segir Vala. „Hún ætlaði að enda þetta snyrtilega en svo reyndist það flókið að taka þetta í sínar hendur. Við búum líka í samfélagi þar sem það er ólöglegt.“

Móðir hennar tók pillur og ætlaði að leggjast til svefns og ekki vakna aftur um morguninn. En það fór ekki eins og það átti að fara. Vala og faðir hennar sátu hjá henni. „Hún bað mig um að passa pabba,“ segir Vala. „Hún sagði: „Vala ég vil að þú hættir við pönnukökuboðið og komir og passir pabba þinn á meðan ég dey.“

Vala var með stöðu grunaðs einstaklings í þrjú ár. Skjáskot/Youtube

En svo fór að þetta tók allt miklu lengri tíma en það átti að gera. Það er um tvo sólarhringa.

„Á endanum voru þetta einhverjir 40 eða 50 klukkutímar sem við sátum yfir henni í dauðastríðinu,“ segir hún. Eldri bræður hennar tveir komu svo líka. „Svo hringjum við á lögregluna þegar þetta er allt afstaðið. Þegar þau mæta á svæðið er okkur tilkynnt að hér sé augljóst að manneskja hafi látið lífið og henni ekki komið til bjargar. Þannig að við erum öll send í fangelsi.“

Ein í fangaklefa

Vala, faðir hennar og bræður voru leidd upp í lögreglubíl og keyrð niður á stöð. Þar sat hún ein í fangaklefa, vitandi af fjölskyldu sinni í nærliggjandi klefum.

Hún vissi ekkert hvað hún yrði þarna lengi. Alls voru þetta nokkrir klukkutímar og hún var yfirheyrð um málið.

Völu var svo sleppt en hún var með stöðu grunaðs einstaklings í um þrjú ár á eftir.  Það er að ekki eru nema tveir mánuðir síðan hún fékk símtal frá lögfræðingnum sínum um að málið hafi verið láti niður falla.

„Við fengum hins vegar strax að vita það frá lögfræðingum að það væri lítill vilji til að ákæra í málinu,“ segir Vala. „Þetta er glufa í kerfinu.“

Stendur og lifir með ákvörðuninni

En þó að Vala hafi ekki verið ákærð hafði þetta mál, og sérstaklega hvernig það þróaðist á slæman hátt, mikil áhrif á hana.

„Ári seinna örmagnast ég. Ég er greind með líklegast ME, sem er þreytusjúkdómur. Þetta var dropinn sem fyllti mælinn,“ segir hún.

Vala er að gefa út ljóðabók þar sem hún fjallar um reynslu sína. Skjáskot/Youtube

Hún segir að þetta sé reynsla sem muni líklega fylgja henni ævilangt. Henni hafi þó fundist það sjálfsagt að gera það sem móðir hennar bað hana um og myndi ekki breyta neinu eftir á.

„Við eigum okkar líf sjálf,“ segir hún. „Mér fannst þetta sjálfsagt og ég mun alltaf standa með því. En ég mun líka alltaf lifa með því.“

Í bríaríi segjum við kannski við fólk að ef við fáum erfiðan sjúkdóm eins og Alzheimer þá viljum við fá að fara og þurfum hjálp við það. „En þegar það kemur að þessu þá er þetta flóknara,“ segir hún.

Vala fjallar um þetta mál og fleira í nýrri ljóðabók sem hún er að gefa út. Bókin heitir Smjörputtar.

Í þessari frétt er fjallað um sjálfsvíg. Ef ein­stak­ling­ar glíma við sjálfs­vígs­hugs­an­ir er bent á Hjálp­arsíma Rauða kross­ins 1717 og netspjall Rauða krossins 1717.is. Opið allan sólarhringinn. Einnig má hafa sam­band við Píeta-sam­tök­in sem veita ókeyp­is ráðgjöf í síma 552-2218, allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru þar sem svarar hjúkrunarfræðingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi má fá stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöð og hjá Pieta samtökunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga
Fréttir
Í gær

Nýja húsnæðið henti ekki Samhjálp og eigi að vera tímabundið

Nýja húsnæðið henti ekki Samhjálp og eigi að vera tímabundið
Fréttir
Í gær

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“
Fréttir
Í gær

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf
Fréttir
Fyrir 2 dögum

SÁÁ og Landspítalinn undirrita samning um sérnám lækna

SÁÁ og Landspítalinn undirrita samning um sérnám lækna
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Svona telur Róbert að borgin gæti sparað mörg hundruð milljónir

Svona telur Róbert að borgin gæti sparað mörg hundruð milljónir