

Morgunblaðið ræðir við Birgi um málið í dag.
Heimir Már sagði í viðtali við Morgunblaðið í gær að það hafi ekki verið talið „framboðinu til framdráttar að vera í þessum félagsskap sem þarna var“ en auk oddvita Flokks fólksins voru boðaðir frambjóðendur Góðan daginn-framboðsins, Sósíalista og Okkar borgar.
Sjá einnig: Heimir Már afþakkaði boð í Silfrið:„Ég sá þetta sjálfur og mér brá svolítið“
Guðmundur Ingi Þóroddsson er oddviti Flokks fólksins í Reykjavík og viðurkenndi hann að honum hafi brugðið þegar greint var frá því að hann hefði afþakkað boð í þáttinn. Hann hefði nefnilega ekki gert það. Bætti hann við að hann fari þangað sem hann er sendur og allt svona fari í gegnum kosningastjórann.
Birgir er ómyrkur í máli í samtali við Morgunblaðið í dag.
„Hann er með þessu að spilla ímynd flokksins, en ég held að það sé engin stemning fyrir því í samfélaginu þegar einn flokkur setur sig á háan hest á kostnað annarra,“ segir hann meðal annars.
Þá er rætt við Sigfús Aðalsteinsson, oddvita Okkar borgar, sem kallar eftir því að Heimir Már og Flokkur fólksins skýri mál sitt.
„Ég krefst þess að fá skýringu á því hvers vegna menn telji sig vera fínni en ég eða aðrir sem þarna voru. Þegar menn hafa svona skoðun, þá dreg ég verulega í efa að Flokkur fólksins geti tekið þátt í komandi kosningum – ef frambjóðandinn getur ekki verið nálægt þeim þremur, öllum eða einhverjum, sem í þáttinn mættu,“ segir hann meðal annars.