

Tumi Fannar Gunnarsson semur til tveggja ára við Fylki
Tumi Fannar kemur frá Breiðabliki þar sem hann er uppalinn, en Fylkismenn þekkja hann vel frá síðasta tímabili.
Tumi lék alla leiki Fylkis í Lengjudeildinni í fyrra, þá á láni frá Breiðabliki, og skoraði eitt mark.
Hann átti marga sterka leiki á miðjunni og vakti verðskuldaða athygli fyrir frammistöðu sína.