
West Ham ætlar sér ekki að selja Mateus Fernandes í sumar, þrátt fyrir mikinn áhuga stórliða.
Fernandes, sem er 21 árs, hefur verið einn af ljósu punktum liðsins á erfiðu tímabili, en West Ham er í fallbáráttu í ensku úrvalsdeildinni.
Manchester United hefur mikinn áhuga á miðjumanninum og er talið að Bruno Fernandes landi hans tali fyrir því að fá hann þangað innan raða félagsins.
Þá fylgist Manchester City einnig með stöðunni.
West Ham greiddi yfir 40 milljónir punda fyrir Fernandes, sem kom frá Southampton síðasta sumar, og sér hann sem lykilmann næstu árin.