fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fréttir

Ný könnun: Mikil óánægja með meirihlutann í borginni og enn meiri með minnihlutann

Kristinn H. Guðnason
Þriðjudaginn 7. apríl 2026 12:00

Oddvitar fimm flokka meirihlutans í Reykajvík.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Töluverð óánægja er með störf meirihlutans í Reykjavík og enn meiri óánægja með störf minnihlutans. 57 prósent eru óánægð með störf Heiðu Bjargar Hilmisdóttur, borgarstjóra.

Þetta kemur fram í nýjum Borgarvita Maskínu.

Aðeins 17 prósent eru ánægð með störf Heiðu Bjargar en 57 prósent óánægð. Mestra óvinsælda nýtur hún í hverfum austan Elliðaáa, þar er 65 prósent, en í Miðborginni og Vesturbænum eru 24 prósent ánægð með hana en 44 prósent óánægð.

Heiða tapaði prófkjörsslag í Samfylkingunni fyrir Pétri Marteinssyni fyrr í vetur en hún er nú í öðru sæti listans.

Óánægja ekki meiri í þrjú ár

Þá telja 16,4 prósent að meirihlutinn í borgarstjórn standi sig vel. En hann samanstendur af Samfylkingu, Sósíalistaflokki, Pírötum, Vinstri grænum og Flokki fólksins. Aðeins 4 prósent telja að meirihlutinn sé að standa sig mjög vel.

Hins vegar telja 58 prósent að meirihlutinn sé að standa sig illa, þar af 33,9 prósent mjög illa. 25,7 prósent svöruðu á þann veg að meirihlutinn væri að standa sig í meðallagi vel.

Er þetta versta mæling sem meirihluti í borginni hefur fengið síðan í ágúst árið 2023. En þá voru 15 prósent ánægð með hann en 59 prósent óánægð.

Eins og gefur að skilja eru það einkum kjósendur viðkomandi flokka sem eru ánægð með störf meirihlutans.

47,7 prósent kjósenda Samfylkingar eru ánægð með meirihlutann, 37,7 prósent Pírata og 33,9 prósent kjósenda Vinstrisins. Hins vegar eru aðeins 5,6 prósent kjósenda Flokks fólksins ánægð með störf meirihlutans og 2,4 prósent Sósíalista, en hafa ber í huga að hinn síðarnefndi flokkur klofnaði í herðar niður á kjörtímabilinu.

Minnihlutinn aldrei óvinsælli

Minnihlutinn í borgarstjórn kemur enn þá verr út en meirihlutinn. En hann samanstendur af Sjálfstæðisflokki, Framsóknarflokki og Viðreisn.

Ánægja með störf minnihlutans mælist aðeins 10,7 prósent en 54,2 prósent eru óánægð. Óánægja með störf minnihlutans hefur ekki mælst meiri á kjörtímabilinu en nú.

29,5 prósent Sjálfstæðismanna eru ánægðir með störf minnihlutans en aðeins 8,7 prósent Framsóknarmanna og 4 prósent kjósenda Viðreisnar. 62,3 prósent kjósenda Viðreisnar eru óánægð með störf minnihlutans. Kjósendur Miðflokksins eru ánægðari með minnihlutann en kjósendur tveggja flokka sem eiga aðild að honum, það er 17,7 prósent.

Könnunin var gerð 16. til 19. mars. Svarendur voru 1.173 talsins.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Málverkum stolið af sýningu í Bolholti um hábjartan dag

Málverkum stolið af sýningu í Bolholti um hábjartan dag
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Davíð segir aðeins tímaspursmál þangað til annað ungmenni láti lífið: „Við þurfum að vakna og það núna“

Davíð segir aðeins tímaspursmál þangað til annað ungmenni láti lífið: „Við þurfum að vakna og það núna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vendingar í deilu Bríetar og Pálma – Frávísun vegna verulegra ágalla

Vendingar í deilu Bríetar og Pálma – Frávísun vegna verulegra ágalla
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Áslaug Arna fær stuðning og gagnrýni eftir umfjöllun um laun hennar – „Hjóla af hörku og hatri gegn konum“ – „Sjúga spena ríkisins“

Áslaug Arna fær stuðning og gagnrýni eftir umfjöllun um laun hennar – „Hjóla af hörku og hatri gegn konum“ – „Sjúga spena ríkisins“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kvartaði vegna trúnaðarbrests í sveitarstjórn

Kvartaði vegna trúnaðarbrests í sveitarstjórn