

Óskarsverðlaunahátíðin var á sunnudag en vikan eða lengri tími mun fara í að fara yfir það sem þar gerðist. Eitt af því er mynd af salnum í Dolby Theatre eftir hátíðina, sem hefur farið eins og eldur í sinu um netið.
Myndin sýnir ruslið sem stjörnurnar skildu eftir, þar á meðal einnota vatnsflöskur og snakkpoka, og hefur myndin vakið upp gagnrýni vegna hræsni elítunnar þegar kemur að umhverfismálum.
„Eru sumir þeirra ekki umhverfissinnar?“ benti einn gagnrýnandi á. „Hvar er öll þessi „vernda plánetuna“-orka núna?“
„Björgum fjöllunum, haltu þeim hreinum en sjáið hvað þau skilja eftir sig,“ bætti annar við. „Enginn trúir þeim lengur.“
„Auðvitað getum við ekki búist við því að óaðfinnanlega klæddir frægir einstaklingar þrífi upp eftir sig,“ skrifaði enn einn til. „Hvað er með „Ekkert plast“ og allar þessar umhverfisáhyggjur fræga fólksins?“
Myndin var með yfirskriftinni „Hreinsið alla gangana.“ (e. Clean Up On Aisle ALL).

Heimildarmaður innan akademíunnar hélt því fram að færslan á samfélagsmiðlum hefði verið tekin úr samhengi og væri „misskilningur“. „Gestir voru beðnir um að skilja boxin eftir og það var ekki sjálfbærnimál,“ sagði heimildarmaðurinn við California Post. „
Margir voru ósáttir við að hinir ríku og frægu skildu eftir óreiðu sem aðrir þurftu að þrífa upp.
„Ríkir skilja eftir óhreinindi sín fyrir fátækt fólk, eins og alltaf,“ skrifaði einn. „Elítan veldur óreiðu og lægri stéttin hreinsar hana eftir þá,“ endurómaði annar. „Þessi tegund fólks sem býst við að aðrir þrífi upp eftir þá.“

Stjörnur sem hafa látið mikið að sér kveða í loftslagsmálum voru á meðal þeirra sem mættu á sunnudag. Jane Fonda, Javier Bardem og Leonardo DiCaprio til að nefna nokkrar.
Þó að margir hafi skammað stjörnurnar fyrir að taka ekki ruslið sitt með sér, kenndu sumir skipulagi á hátíðinni um ástandið.