fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
433Sport

Eitt af fórnarlömbunum lýsir vonbrigðum með forráðmenn Liverpool – „Tel að þeir hafi brugðist okkur“

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 16. mars 2026 21:00

Mynd frá vettvangi í Liverpool. Mynd: DV_KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fórnarlömb bílárásarinnar sem átti sér stað á titilhátíð Liverpool árið 2025 hafa stigið fram í fyrsta sinn og lýst heilsuvandamálum sem þau glíma enn við eftir atvikið sem skók borgina.

Í desember var fyrrum landgönguliði, Paul Doyle, dæmdur í 21 árs og sex mánaða fangelsi eftir að hafa ekið bíl sínum inn í mannfjölda stuðningsmanna Liverpool á hátíðarhöldum í maí í fyrra.

Doyle, sem er giftur þriggja barna faðir frá Croxteth í Liverpool, sagðist hafa „farið í panik“ og ekið bílnum inn í mannfjöldann af ótta um eigið líf. Myndefni úr mælaborðsmyndavél hans og eftirlitsmyndavélum sýndi hins vegar að hann missti stjórn á skapi sínu og notaði bílinn viljandi sem vopn“

Eitt fórnarlambanna, 73 ára stuðningsmaður Liverpool, Stefan Dettlaf, rifbeinsbrotnaði illa í árásinni og lá á sjúkrahúsi í nokkra daga. Í viðtali við sjónvarpsþáttinn 5 News at 5 sagðist hann hafa fundið ákveðna samúð með Doyle þegar málið var tekið fyrir í dómi.

„Ég skulda honum enga samúð en mér fannst hann líta út fyrir að eiga erfitt,“ sagði Dettlaf.

Árásamaðurinn.

„Margir segja að hann hafi fengið það sem hann átti skilið, og ég er sammála því. En það var líka hrein heppni að enginn lést.“

Dettlaf sagðist þó vera ósáttur við þann stuðning sem hann segir að fórnarlömbin hafi fengið frá félaginu.

„Ég tel að Liverpool hafi brugðist okkur,“ sagði hann.

„Ég bjóst ekki endilega við því að einhver kæmi persónulega til að heimsækja mig, þó það hefði auðvitað verið fallegt. En að minnsta kosti einhver frá félaginu hefði getað haft samband og spurt: ‘Hvernig hefurðu það?’ eða sagt að þeim væri annt um okkur.

„Það var heldur ekkert boðið upp á sálfræðiaðstoð frá félaginu eða neitt slíkt.“

Dettlaf sagði að hann hefði ekki treyst sér til að ræða atvikið fyrr en nú, 294 dögum eftir árásina, þar sem hann hefði lengi þjáðst af endurminningum og áfallastreitu.

Alls voru 134 fórnarlömb skráð eftir árásina og lögreglan á Merseyside Police sagði það hreina heppni að enginn lést.

Forráðamenn Liverpool segja að félagið hafi aðeins fengið upplýsingar um um 30 fórnarlömb og hafi haft samband við þau sem alvarlegast slösuðust á vikunum eftir atvikið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Ræddi lygilega atburðarás í Kópavogi – „Engin gæsla og menn fóru að skiptast á höggum“

Ræddi lygilega atburðarás í Kópavogi – „Engin gæsla og menn fóru að skiptast á höggum“
433Sport
Í gær

Tilkynnir að hún sé að hætta með tilfinningaþrungnu myndbandi

Tilkynnir að hún sé að hætta með tilfinningaþrungnu myndbandi
433Sport
Í gær

Blönduðu sér í umræðu síðustu daga – „Ég er hrifinn af þessu“

Blönduðu sér í umræðu síðustu daga – „Ég er hrifinn af þessu“
433Sport
Í gær

Eru með verðmiða í huga og ætla ekki í neitt stríð ef það verður

Eru með verðmiða í huga og ætla ekki í neitt stríð ef það verður
433Sport
Fyrir 2 dögum

Nýr búningur United lekur á netið

Nýr búningur United lekur á netið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Jóhann ómyrkur í máli – „Mér finnst þetta bara líta virkilega illa út“

Jóhann ómyrkur í máli – „Mér finnst þetta bara líta virkilega illa út“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segja milljónamæringana á Akranesi engu hafa skilað í vor – „Gísli á að vera þeirra Aron Sig“

Segja milljónamæringana á Akranesi engu hafa skilað í vor – „Gísli á að vera þeirra Aron Sig“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Vonast eftir því að Tottenham falli – Sagðir með samkomulag við leikmann þeirra

Vonast eftir því að Tottenham falli – Sagðir með samkomulag við leikmann þeirra