fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
Fókus

Laufey mætti á Sinfó – Þakkar kærlega fyrir helgina – „Takk fyrir mig Ísland, mitt draumaland“

Fókus
Mánudaginn 16. mars 2026 15:19

Laufey knúsar ungan aðdáanda á tónleikum í Kórnum um helgina. Mynd: Facebook-síða Laufeyjar

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eins og kunnugt er hélt tónlistarstjarnan Laufey Lín Jónsdóttir tvo stórtónleika um nýliðna helgi í Kórnum í Kópavogi. Á meðan dvöl hennar hér á landi hefur staðið hefur hún hins vegar sjálf farið á tónleika en síðasta föstudag fór hún á tónleika hljómsveitar sem hún þekkir velt til, Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Tónlistarkonan þakkar einnig kærlega fyrir móttökurnar á tónleikum helgarinnar og segir að hún hafi hugsað mikið til líðan sinnar þegar hún var barn.

Laufey hefur spilað áður á tónleikum með Sinfóníunni en eins og margir vita er móðir hennar Lin Wei fiðluleikari í sveitinni en Sigurgeir Agnarsson sem kenndi Laufeyju á selló er einnig meðlimur sveitarinnar.

Laufey mætti á tónleika Sinfóníunnar í Hörpu síðasta föstudag þar sem tvö verk leikin en það fyrra var sellókonsert enska tónskáldins Edwards Elgar en einleik lék austurríski sellóleikarinn Kian Soltani sem hefur verið staðarlistamaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Á Facebook-síðu Sinfóníunnar er birt mynd af Soltani og Laufeyju með eftirfarandi orðum:

„Við þökkum Laufeyju kærlega fyrir komuna og sendum henni hamingjuóskir með tónleikana sína um helgina og tilnefningarnar til Íslensku tónlistarverðlaunanna!“

Í nýrri færslu á Facebook-síðu sinni þakkar Laufey síðan kærlega fyrir móttökurnar á tónleikum helgarinnar:

„Takk fyrir mig Ísland, mitt draumaland. Það er sannur heiður að fá að spila fyrir ykkur..takk fyrir að fylla Kórinn tvisvar!! Takk fyrir að stíga inn í heiminn minn og fyrir allan stuðninginn! Ég gæti ekki gert þetta án ykkar. Ég óska þess að ég gæti sagt yngri Laufeyju frá þessari helgi!! Hún hefði ekki trúað þessu!!“

Með færslunni fylgir einnig stutt myndband þar sem heyra má hluta af flutningi Laufeyjar, frá tónleikunum, á hinu 120 ára gamla sönglagi Draumalandið, eftir Sigfús Einarsson við texta Guðmundar Magnússonar en hún hefur sjálft sagt það vera eitt af þeim íslensku lögum sem allir verði að heyra að minnsta kosti einu sinni.

Undir íslenska textanum er texti á ensku sem er aðeins öðruvísi en þar segir Laufey að hún hafi í æsku átt erfitt með að finna sinn sess í veröldinni þar sem hún hafi alist upp í tveimur menningarheimum. Þar á hún væntanlega við þann kínverska og hinn íslenska. Allir æskudraumar hennar hafi farið í tónleikana og hún gæti ekki verið stoltari. Þakkar hún að lokum hljómsveitinni á tónleikunum, dönsurum og öllu starfsfólki.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Drykkurinn „Irish carbomb“ sagður vera svívirða

Drykkurinn „Irish carbomb“ sagður vera svívirða
Fókus
Í gær

Adam Sandler sendir hinni barnlausu Jennifer Aniston blóm á hverjum mæðradegi

Adam Sandler sendir hinni barnlausu Jennifer Aniston blóm á hverjum mæðradegi
Fókus
Fyrir 6 dögum

Uppselt á afmælistónleika Stefáns Hilmarssonar – Aukatónleikar degi síðar

Uppselt á afmælistónleika Stefáns Hilmarssonar – Aukatónleikar degi síðar
Fókus
Fyrir 6 dögum

Skotárásin á heimili Rihönnu – Færslur á samfélagsmiðlum geranda sýna stórundarlega hegðun

Skotárásin á heimili Rihönnu – Færslur á samfélagsmiðlum geranda sýna stórundarlega hegðun
Fókus
Fyrir 1 viku

TikTok myndband segir að fólk fái tilkynningar þegar því er flett upp í Íslendingabók – En hvað er hið sanna?

TikTok myndband segir að fólk fái tilkynningar þegar því er flett upp í Íslendingabók – En hvað er hið sanna?
Fókus
Fyrir 1 viku

Klæddi sig í 24 bleyjur og dýfði sér í Thames fljót til að mótmæla – Fékk lífshættulegan sjúkdóm

Klæddi sig í 24 bleyjur og dýfði sér í Thames fljót til að mótmæla – Fékk lífshættulegan sjúkdóm