fbpx
Föstudagur 13.mars 2026
Fréttir

Þorsteinn kallar eftir meira heimanámi – Segir það geta sameinað fjölskyldur

Ritstjórn DV
Föstudaginn 13. mars 2026 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þorsteinn Þorsteinsson, fyrrverandi skólameistari Fjölbrautaskólans í Garðabæ, er þeirrar skoðunar að of lítið sé um heimanám hjá nemendum í íslenskum skólum. Hann viðrar þessa skoðun sína í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.

„Heimanámið var meira og minna aflagt vegna þrýstings fá kennurum og ekki síst frá foreldrum. Verulegur munur er á kröfum sem gera má til heimanáms barna eftir aldri. Eftir 10 ára aldur má að skaðlausu leggja fyrir heimanám og auka smám saman eftir aldri,” segir hann en Þorsteinn var skólameistari FG í 26 ár, frá árinu 1984 til 2010. Alls starfaði hann að skólamálum í 45 ár.

„Foreldrar hafa talið hin síðari ár að þeir hafi ýmislegt þarfara að gera en að láta heimanám barna sinna trufla sig og allt heimilishald. Foreldrar voru og eru meira og minna uppteknir við að sinna lífsgæðakapphlaupinu og/eða eigin tómstundum. Þetta hefur farið vaxandi í seinni tíð og er óheillavænleg þróun,” segir hann í grein sinni.

Þorsteinn vill meina að hóflegt heimanám sé mikilvægt og skapi aga og þjálfi nemendur auk þess í að undirbúa sig fyrir frekari verkefni.

„Heimanámið getur sameinað fjölskyldur vel ef foreldrar, systkini og aðrir ættingjar taka þátt í heimanáminu, t.d. með því að leiðbeina hóflega og hlýða yfir,” segir hann og bætir við að vel komi til greina að nemendur læri ljóð eins og fullorðna fólkið í dag var látið gera þegar það var í barnaskóla. „Það skerpir minni, athyglisgáfu og getur kennt vönduð vinnubrögð ef vel er á haldið,” segir hann.

Þorsteinn segir að lokum að mikilvægt sé að foreldrar átti sig á því að gott uppeldi barna sé samvinnuverkefni skóla og heimilis.

„Þessu hlutverki má aldrei velta eingöngu yfir á annaðhvort heimili eða skóla. Hóflegt heimanám hefur gott uppeldislegt gildi,” segir hann og tekur svo að lokum fram að mikilvægt sé að hrósa börnunum þegar þau standa sig vel.

„Hrósið er afar kröftugt hvatningartæki og ættu menn oftar að nota það þegar ástæða er til. Barn, sem kemur með góða einkunn heim úr skóla og fær hrós frá heimilisfólki, eflist mjög við slíka hvatningu. Hrósið er margfalt öflugra ef aðrir en nánustu fá einnig að heyra er barni er hrósað.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Dularfull staða nýs leiðtoga Írans – Er hann lífs eða liðinn?

Dularfull staða nýs leiðtoga Írans – Er hann lífs eða liðinn?
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Hannes Hólmsteinn kveður góðan vin og rifjar upp fyrstu kynnin – „Ég fann strax, að hann var vel til leiðtoga fallinn“

Hannes Hólmsteinn kveður góðan vin og rifjar upp fyrstu kynnin – „Ég fann strax, að hann var vel til leiðtoga fallinn“
Fréttir
Í gær

„Færð bara yfir þig dembuna“

„Færð bara yfir þig dembuna“
Fréttir
Í gær

Hætti í vinnunni vegna vanlíðunar og skertra kjara en fékk enga miskunn

Hætti í vinnunni vegna vanlíðunar og skertra kjara en fékk enga miskunn
Fréttir
Í gær

Ferðamaður spyr hvers vegna Ísland hafi ekki samræmdan ferðamannapassa – Þurfi að rífa upp veskið við hvern foss

Ferðamaður spyr hvers vegna Ísland hafi ekki samræmdan ferðamannapassa – Þurfi að rífa upp veskið við hvern foss
Fréttir
Í gær

Munu Íranar ráðast beint á Bandaríkin? Vaxandi ótti um hefndaraðgerðir

Munu Íranar ráðast beint á Bandaríkin? Vaxandi ótti um hefndaraðgerðir