fbpx
Þriðjudagur 10.mars 2026
433Sport

Með 280 milljónir á mánuði en stendur til boða að fá veglega launahækkun

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 10. mars 2026 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Harry Kane er sagður vera í viðræðum við Bayern München um nýjan samning sem gæti fært honum umtalsverða launahækkun.

Enska landsliðsfyrirliðinn gekk til liðs við þýska stórliðið frá Tottenham árið 2023 fyrir um 104 milljónir punda og hefur síðan þá verið einn mikilvægasti leikmaður liðsins. Nú vilja forráðamenn Bayern tryggja að hann verði áfram hjá félaginu til lengri tíma þrátt fyrir að núverandi samningur hans gildi til ársins 2027.

Kane, sem er 32 ára, hefur farið á kostum síðan hann kom til Þýskalands. Hann hefur skorað 130 mörk í 133 leikjum fyrir Bayern og leiðir markaskoraralistann í þýsku Bundesligunni á þessu tímabili með 30 mörk.

Samkvæmt þýska miðlinum Bild er Bayern tilbúið að hækka laun hans, sem eru nú um 400 þúsund pund á viku. Með þeim launum er Kane nú þegar launahæsti leikmaður þýsku deildarinnar.

Framherjinn ákvað nýlega að nýta ekki ákvæði í samningi sínum sem hefði gert honum kleift að virkja lausnarákvæði sem rann út í lok janúar.

Fjárhagsstaða Kane er einnig sterk utan vallar. Fyrirtæki hans, HK28 Limited, sem sér um ímyndarréttindi hans, átti yfir 11 milljónir punda í egið fé í lok árs 2024.

Kane hefur einnig fjárfest í nokkrum verkefnum, meðal annars í þýska matvælafyrirtækinu 3Bears Foods GmbH þar sem hann hefur komið fram í auglýsingum fyrir hafragraut fyrirtækisins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Vill taka við Manchester United frekar en Tottenham í sumar

Vill taka við Manchester United frekar en Tottenham í sumar
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Sorglegt andlát hjá 15 ára stúlku um helgina – Hneig niður í miðjum leik

Sorglegt andlát hjá 15 ára stúlku um helgina – Hneig niður í miðjum leik
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Drátturinn í enska bikarnum: Chelsea og Arsenal fengu létta drætti – Stórleikur City og Liverpool

Drátturinn í enska bikarnum: Chelsea og Arsenal fengu létta drætti – Stórleikur City og Liverpool
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Flækist inn í stórt lögfræðimál – Krefjast þess að fá bætur eftir svikin loforð

Flækist inn í stórt lögfræðimál – Krefjast þess að fá bætur eftir svikin loforð
433Sport
Í gær

Xavi vildi leikmanninn sem hefur slegið í gegn með Arsenal – Yfirmennirnir sögðu hann of dýran

Xavi vildi leikmanninn sem hefur slegið í gegn með Arsenal – Yfirmennirnir sögðu hann of dýran
433Sport
Í gær

Svona er staða Íslands eftir fyrstu tvo leikina – Mikið undir á Laugardalsvelli í apríl

Svona er staða Íslands eftir fyrstu tvo leikina – Mikið undir á Laugardalsvelli í apríl