fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
433Sport

Abramovich vill fá milljarðana sem breska ríkið fyrsti

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 10. mars 2026 09:00

Roman Abramovich er rússneskur olígarki sem hefur tapað peningum vegna stríðsins. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Roman Abramovich, fyrrum eigandi Chelsea, hyggst berjast gegn öllum tilraunum breskra yfirvalda til að taka yfir þá fjármuni sem voru frystir eftir sölu félagsins.

Abramovich var neyddur til að selja Chelsea eftir að bækur félagsins voru frystar eftir innrás Rússlands í Úkraínu, ástæðan eru tengsl hans við Vladimir Putin.

Eftir að Abramovich seldi Chelsea árið 2022 voru um 2,35 milljarðar punda úr sölunni frystir í Bretlandi. Nú segir lögfræðiteymi hans að fjármunirnir tilheyri honum og að hann muni mótmæla ef stjórnvöld reyna að ráðstafa þeim án samþykkis hans.

Abramovich hefur áður sagt að hann vilji að peningarnir fari til aðstoðar fórnarlömbum stríðsins í Úkraínu. Samkvæmt lögfræðingum hans vill hann þó að það gerist samkvæmt skilyrðum sem hann setur sjálfur.

Bresk stjórnvöld hafa hins vegar viljað að fjármunirnir fari í sérstakan sjóð sem hjálpi fórnarlömbum stríðsins, sem hefur leitt til ágreinings um hvernig eigi að ráðstafa peningunum.

Málið er því enn óleyst og gæti endað í langvinnum lagadeilum milli Abramovich og breskra yfirvalda um framtíð fjármunanna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Klásúla í samningi Bruno í sumar – Getur farið ódýrt frá United

Klásúla í samningi Bruno í sumar – Getur farið ódýrt frá United
433Sport
Í gær

Blönduðu sér í umræðu síðustu daga – „Ég er hrifinn af þessu“

Blönduðu sér í umræðu síðustu daga – „Ég er hrifinn af þessu“
433Sport
Í gær

Þetta er það sem stjörnurnar virðast spá mest í þegar þær koma til Íslands – „Maður er bara vanur því“

Þetta er það sem stjörnurnar virðast spá mest í þegar þær koma til Íslands – „Maður er bara vanur því“
433Sport
Í gær

Vaxandi áhugi á Jadon Sancho

Vaxandi áhugi á Jadon Sancho
433Sport
Í gær

Uppnám í Hollandi vegna lagadeilu – Gæti þurft að spila 133 leiki aftur

Uppnám í Hollandi vegna lagadeilu – Gæti þurft að spila 133 leiki aftur
433Sport
Í gær

Langskotið og dauðafærið – Skilar Tottenham stóra seðlinum í hús með bakið upp við vegg?

Langskotið og dauðafærið – Skilar Tottenham stóra seðlinum í hús með bakið upp við vegg?