fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
433Sport

Guardiola á leið í tveggja leikja bann en missir samt ekki af úrslitaleiknum

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 10. mars 2026 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Pep Guardiola verður á hliðarlínunni þegar Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik enska deildabikarsins eftir tvær vikur, þrátt fyrir að standa frammi fyrir tveggja leikja banns vegna gulra spjalda.

Guardiola fékk sitt sjötta gula spjald á tímabilinu í 3-1 sigri Manchester City gegn Newcastle í fimmtu umferð FA-bikarsins um helgina. Spjaldið fékk hann eftir að hafa mótmælt harkalega þegar Kieran Trippier togaði í Jeremy Doku.

Spánverjinn missti stjórn á skapi sínu á hliðarlínunni, gekk að fjórða dómara leiksins, Lewis Smith, og reif af sér jakkann í reiði. Eftir leik þurfti jafnvel að halda honum aftur þegar hann reyndi að ræða við dómarana.

Samkvæmt reglum sem voru teknar upp fyrir þetta tímabil leiðir sjötta gula spjaldið til tveggja leikja banns á hliðarlínunni.

Bannið tekur þó ekki gildi í úrslitaleik deildarbikarsins sem þýðir að Guardiola mun geta stýrt Manchester City gegn Arsenal í úrslitaleiknum. Bannið gildir í deildinni og enska bikarnum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Þetta er það sem stjörnurnar virðast spá mest í þegar þær koma til Íslands – „Maður er bara vanur því“

Þetta er það sem stjörnurnar virðast spá mest í þegar þær koma til Íslands – „Maður er bara vanur því“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Vaxandi áhugi á Jadon Sancho

Vaxandi áhugi á Jadon Sancho
433Sport
Fyrir 2 dögum

Vill þjálfa aftur á Englandi

Vill þjálfa aftur á Englandi
433Sport
Fyrir 2 dögum

Besta deild kvenna: Tveir dramatískir sigrar

Besta deild kvenna: Tveir dramatískir sigrar