

Þetta er meðal þess sem kemur fram í umfjöllun Morgunblaðsins í dag en þar er rætt við Valgarð og Sigríði Ólafsdóttur, dósent við menntavísindasvið Háskóla Íslands.
Í viðtalinu segir Valgarður að tímarnir hafi breyst; foreldrar vinni lengur, séu minna með börnum sínum og aðhald varðandi heimanám hafi minnkað. Þá sé læsi barna allt öðruvísi í dag en það var fyrir 30 árum. Upplýsingar sem þau sækja sér séu í formi stuttra texta og myndbrota.
Valgarður segir að í dag virðist önnur færni vera á undanhaldi, til dæmis að setjast niður og lesa bækur og hann kveðst hafa áhyggjur af því. „Mjög margir unglingar hafa ekki eirð í sér til þess að setjast niður með bók og lesa hana blaðsíðu fyrir blaðsíðu, orð fyrir orð, allan textann.”
Valgarður kveðst hafa áhyggjur af því að kennarar – hann þar á meðal – séu farnir að koma of mikið til móts við nemendur. Upplifir hann að kröfurnar í dag séu minni.
Í Morgunblaðinu er einnig rætt ítarlega við Sigríði Ólafsdóttur sem segir samfélagið komið á hættulegan stað ef við erum farin að minnka kröfur til nemenda.
„Það gefur auga leið að því minni kröfur sem við gerum, því minni væntingar sem við höfum um framfarir í námi nemenda, þeim mun minni verður árangurinn – eðlilega,“ segir hún.