fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
Fréttir

TVG-Zimsen kaupir Cargo Express

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 6. mars 2026 15:01

Höfuðstöðvar Eimskips og TVG-Zimsen.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

TVG-Zimsen, dótturfyrirtæki Eimskips, hefur fest kaup á fyrirtækinu Cargo Express sem sérhæfir sig í flugfrakt á Íslandi.  Með kaupunum bætir TVG-Zimsen við sig mikilvægri þekkingu á sviði flugfraktar og þar með er stígið stórt skref í stefnu samstæðu Eimskips um að efla þjónustu, breikka vöruúrval og styðja við áframhaldandi þróun samþættra og virðisaukandi lausna á sjó, landi og í lofti.

„Með kaupum á Cargo Express eflum við þjónustuframboð félagsins og styrkjum heildarlausnir til okkar viðskiptavina, sérstaklega í útflutningi á ferskum afurðum,“ segir Björn Einarsson, stjórnarformaður TVG-Zimsen. „Við sjáum fram á spennandi tækifæri, meðal annars í lax- og fiskeldi, þar sem sérhæfð flugfrakt er sterk viðbót við þjónustuframboð samstæðunnar. Við sjáum mikla möguleika í þessari ört vaxandi atvinnugrein og ætlum við að vera fremst í flokki með frumkvæði og metnaðarfullt lausnaframboð fyrir okkar viðskiptavini.“

Cargo Express, stofnað 2008, er fyrsta sjálfstæða GSA (General Sales Agent) fyrirtækið fyrir flugfrakt á Íslandi. Fyrirtækið hefur byggt upp viðamikla sérþekkingu og traust viðskiptasambönd. Félagið hefur styrkst jafnt og þétt frá stofnun og er áætlaður hagnaður fyrir árið 2025 um 130 milljónir króna. Cargo Express býður upp á sérhæfðar lausnir í flugfrakt, tollafgreiðslu, skjölun og meðhöndlun hitastýrðra sendinga, þar á meðal ferskra sjávarafurða. Róbert Tómasson, einn af stofnendum Cargo Express, mun áfram gegna hlutverki framkvæmdastjóra og leiða rekstur þess innan TVG-Zimsen.

„Ég er stoltur af vegferð Cargo Express og að fyrirtækið fái nú tækifæri til að þróast enn frekar innan TVG-Zimsen og Eimskips samstæðunnar. Ég tel að kaupin komi til með að styrkja og útvíkka þjónustuframboð til viðskiptavina. Það eru að eiga sér stað mikil umskipti á útflutningsmarkaði til dæmis með auknu fiskeldi og öðrum sérhæfðum flutningum með flugi. Þessi tímamót bjóða upp á mikla möguleika til að styrkja þá þjónustu sem Cargo Express hefur boðið uppá undanfarin 17 ár,“ segir Róbert.

Kaupin eru háð fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Ráðgjafi seljanda í söluferlinu var KPMG og LOGOS var ráðgjafi kaupanda.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Virtur miðill fjallar um sundlaugamenningu Íslands og greinir frá áhyggjum Íslendinga – „Við viljum halda þessu út af fyrir okkur“

Virtur miðill fjallar um sundlaugamenningu Íslands og greinir frá áhyggjum Íslendinga – „Við viljum halda þessu út af fyrir okkur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Danska konan skuldar Gunnari um 11 milljónir – „Ég er alveg brjálaður yfir þessu“

Danska konan skuldar Gunnari um 11 milljónir – „Ég er alveg brjálaður yfir þessu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Eiríkur fékk ábendingu um hver sendi nafnlausa bréfið um afa hans – „Aldrei djók eða fyndið“

Eiríkur fékk ábendingu um hver sendi nafnlausa bréfið um afa hans – „Aldrei djók eða fyndið“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Benedikt á inni greiðslur hjá Dönsku konunni – „Því miður klassískt í íslenskri kvikmyndagerð að fólk fresti laununum sínum“

Benedikt á inni greiðslur hjá Dönsku konunni – „Því miður klassískt í íslenskri kvikmyndagerð að fólk fresti laununum sínum“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Segja fjárhagsstöðu Seltjarnarness enn versna – Handbært fé um áramót dugði fyrir 3 daga rekstri

Segja fjárhagsstöðu Seltjarnarness enn versna – Handbært fé um áramót dugði fyrir 3 daga rekstri
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fjórir í gæsluvarðhaldi í umfangsmiklu fíkniefnamáli

Fjórir í gæsluvarðhaldi í umfangsmiklu fíkniefnamáli